05 mar Viðreisn í Kópavogi leggur fram lista
Kæru félagar í Viðreisn í Kópavogi,
Boðað er til félagsfundar þar sem uppstillingarnefnd mun kynna tillögu að framboðslista félagsins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og leggja hann fyrir félagsmenn til afgreiðslu.
Þetta er mikilvægt skref í okkar sameiginlega verkefni. Framboðslistinn endurspeglar þá sýn, kraft og breidd sem við viljum standa fyrir í Kópavogi.
Við hvetjum ykkur öll til að mæta, saman göngum við í takt inn í næsta kafla.
Staður: 27 mathús og Bar
Stund: 5.mars kl.19:30