Ef það er bilað, lagaðu það!

Flestir stjórnmálamenn leggja mikla áherslu á góða hagstjórn, enda kjörnir til þess að stýra landinu af ábyrgð. Það sama gilti um íslenska stjórnmálamenn síðustu áratuga. Þeir reyndu sitt besta og jafnvel þótt þeir hafi ekki verið í sama stjórnmálaflokki og ég, þá ætla ég þeim ekki annað en að hafa sinnt hagstjórn landsins af heilindum. En þrátt fyrir góðan vilja sýnir sagan okkur að þeim hefur aldrei tekist að stýra peningamálum þjóðarinnar svo þau þjóni hagsmunum almennings. Þeir hafa aldrei náð að beisla ótemjuna: Krónuna.

Síendurteknar gengisfellingar með tilheyrandi kjaraskerðingum fyrir almenning, öfgakenndar gengissveiflur, óðaverðbólga, kreppur og hrun, allt hefur þetta komið sér skelfilega fyrir launafólk í landinu. Í dag þurfa þeir sem vilja fjárfesta í húsnæði að borga heilli milljón meira á ársgrundvelli af 20 milljóna króna láni en frændur okkar Danir, vegna hárra vaxta. Útflutnings- og nýsköpunarfyrirtækjum er lífsins ómögulegt að gera áætlanir vegna gengissveiflna. Krónan hefur alltaf reynst dýrkeypt.

Þessar síendurteknu kjaraskerðingar sem almenningur hefur tekið á sig síðustu áratugi af völdum íslensku krónunnar segja okkur það eitt að krónan er gallagripur sem þjónar engum, eða a.m.k. mjög fáum. Hún þjónar ekki heimilunum, ekki landbúnaðinum, sjávarútveginum, ferðaþjónustunni eða nýsköpunarfyrirtækjunum okkar, né íslenska ríkinu. Háir vextir þjóna einungis fjármagnseigendum og sveiflurnar sem krónan veldur eru slæmar fyrir alla.

Það hlýtur því að vera meginverkefni stjórnmálanna í dag að boða lausnir á krónuvandanum, öllum til hagsbóta. Viðreisn boðar framtíðarsýn í peningamálum til skemmri og lengri tíma sem miðar að því að lækka vexti.

Til skemmri tíma tölum við fyrir bindingu krónunnar við annan gjaldmiðil, svokallölluðu myntráði, til að skapa nauðsynlegan stöðugleika til að geta lækkað vexti. Til langframa talar Viðreisn fyrir upptöku evru, sem er samkvæmt skýrslu Seðlabanka Íslands frá 2012 raunhæfasti kostinn í gjaldmiðlamálum Íslands fyrir utan myntráð og krónu.

Núverandi velmegun hefur náðst þrátt fyrir íslensku krónuna en væri meiri án hennar. Íslendingar eiga betra skilið. Nú er tíminn fyrir breytingar!

Höfundur er alþingismaður og varaformaður Viðreisnar.

Greinin birtist í Vísi 10. ágúst 2017.