21 ágú Ísland tækifæranna: ótímabundið dvalarleyfi
Stór hluti innflytjenda. EES-borgarar, hefur í reynd rétt til að dvelja á Íslandi ótímabundið. En staða hinna er í raun miklu veikari en hún var fyrir tuttugu árum.
Búið er að lengja biðtíma eftir ótímabundnu dvalarleyfi úr þremur í fjögur.
Þá veita ekki öll dvalarleyfi rétt til að fá ótímabundið dvalarleyfi. Staðan í dag er þessi:
Þessi leyfi telja inn í búseturétt:
- Dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar
- Dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki
- Dvalarleyfi fyrir íþróttafólk
- Dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar
- Dvalarleyfi vegna mannúðarsjónarmiða
- Dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið
Þessi gera það stundum:
- Dvalarleyfi vegna náms (ef menn klára framhaldsnám og fá vinnu sem sérfræðingar)
- Dvalarleyfi fyrir sjálfboðaliða og trúboða (fyrir skráð trúfélög)
Þessi gera það ekki:
- Dvalarleyfi vegna samninga Íslands við erlend ríki
- Dvalarleyfi fyrir sérhæfða starfsmenn á grundvelli samstarfs- eða þjónustusamnings
- Dvalarleyfi vegna vistráðningar
- Dvalarleyfi fyrir hugsanlegt fórnarlamb mansals
- Dvalarleyfi fyrir fórnarlamb mansals
- Dvalarleyfi vegna sérstaks og lögmæts tilgangs
- Bráðabirgðarleyfi
Best væri að við myndum fara til ástandsins eins og það var einu sinni: Að öll lögleg dvöl teldi til ótímabundins dvalarleyfis. Ef við nauðsynlega viljum takmarka réttinn við eitthvað ætti það takmarkast við au-pair leyfin og útsenda starfsmenn.
Þá yrði það algerlega að skaðlausu að stytta biðtímann úr fjórum árum í þrjú. Það myndi líka minnka skriffinnsku og álag á Útlendingastofnun.
Þá ætti að slaka á framfærsluviðmiðum dvalarleyfa. Framfærsluviðmiðin eru hugsuð til að innflytjandinn geti framfleytt sér sjálfur, en í einhverjum tilfellum (t.d. í tilfelli námsmanna) eru þau líklegast of há og auk þess hefur maður heyrt að stíf túlkun þeirra leiðir til þess að fólk með ekkert vesen lendir í vandræðum ef það verður tekjulítið yfir einhvern smá tíma.
Samantekt yfir tillögur
- Öll lögleg dvöl telji inn í ótímabundið dvalarleyfi
- Biðtími styttur úr fjórum árum í þrjú
- Endurskoða kröfur um framfærsluviðmið