03 okt Það er dýrt að búa á Íslandi
Vaxtakostnaður 20 milljóna króna fasteignaláns er um 80 þúsund krónum hærri á mánuði hér á landi á Íslandi en hjá nágrönnum okkar á Norðurlöndunum. Ástæðan fyrir því er einföld. Vextir af húsnæðislánum eru um þrisvar til fjórum sinnum hærri á Íslandi. Til að standa undir þessum kostnaði þurfum við að hafa 130 þúsund krónum meira í laun á mánuði en fólk á Norðurlöndunum. Það er dýrt að búa á Íslandi.
Vextir á Íslandi eru einfaldlega allt of háir. Almenningi er gert of erfitt um vik að eignast húsnæði. Um það þarf vart að deila. Þetta vandamál hefur samt verið þrætuepli stjórnmálanna árum og jafnvel áratugum saman án þess að viðunandi lausn finnist á vandanum. Stjórnmálamenn eru iðnir við að gagnrýna Seðlabankann fyrir háa vexti. Staðreyndin er samt sú að bankinn vinnur eftir stefnu sem Alþingi setti honum fyrir 16 árum síðan. Það er ekki hægt að gagnrýna afleiðingar þessa fyrirkomulags árum saman án þess að koma með tillögur að lausn sem ræðst að rót vandans, þ.e. óstöðugleika og smæð íslensku krónunnar.
Eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar
Seðlabankinn vann ýtarlega skýrslu fyrir fimm árum síðan um valkosti okkar í þessum málum. Upptaka evru var þar talin besti kosturinn en einnig var fjallað um kosti og galla ýmissa annarra kosta svo sem fastgengis (svo sem myntráðs) eða umbóta á núverandi stefnu. Stjórnmálin gerðu því miður lítið sem ekkert með niðurstöður hennar. Það er ótrúlegt að skýrslan hafi ekki vakið meiri áhuga stjórnmálamanna en raun ber vitni, enda eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar.
Viðreisn talaði fyrir fastgengisstefnu fyrir síðustu kosningar, svonefndu Myntráði. Við höfum einnig bent á kosti evrunnar, en upptaka hennar er auðvitað háð inngöngu í Evrópusambandið. Strax eftir að ný ríkisstjórn tók við í janúar á þessu ári var skipaður starfshópur um endurskoðun peningastefnunnar. Það er í fyrsta sinn sem stjórnvöld ráðast í þá vinnu frá 2001. Hópurinn hefur fengið til liðs við sig færustu erlenda sérfræðinga til að taka út kosti og galla núverandi fyrirkomulags auk þess að fjalla sérstaklega um myntráð. Hópurinn mun skila niðurstöðum sínum fljótlega upp úr áramótum.
Hátt vaxtastig hér á landi er önnur af helstu ástæðum þess að það er dýrt að búa hér á landi. Hin er hátt matvælaverð. Stjórnmálin geta ekki haldið áfram að skila auðu í þessum málum. Fátt getur aukið velferð okkar meira en lækkun vaxta og matvælaverðs. Það er löngu tímabært að laga þetta.
Höfundur er félags- og jafnréttisráðherra. Grein birtist fyrst á visir.is 3. október 2017.