Ekkert bakslag í þessa baráttu

Þær eru sláandi nýlegar fréttir af miklum fjölda þeirra sem deyja hér á landi úr of stórum skammti vímuefna. Ýmis ávanabindandi lyfseðilsskyld lyf eru þar ofarlega á blaði. Svipaðar fréttir frá nágrannalöndum okkar eru harkaleg áminning til okkar um það að enginn er eyland þegar kemur að vímuefnabaráttunni.

Það á að sjálfsögðu að vera í algjörum forgangi heilbrigðisyfirvalda að grípa til aðgerða til að stemma stigu við þessari ógnvænlegu þróun. Þar skiptir hins vegar ekki bara máli hvað er gert, heldur líka hvernig.

Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur rætt um ýmsar aðgerðir sem eru í deiglunni hjá yfirvöldum t.d. hert aðgengi að lyfjum og neyslurými. Þetta eru þarfar aðgerðir, en ég vil hnykkja á því að það þarf skýra sýn á heildarmyndina.

Heilbrigðisráðherra hefur boðað skipan starfshóps sem á að móta tillögur um hvernig hægt er að draga úr mis- og of­notk­un geð- og verkjalyfja. Þar munu m.a. fulltrúar Lyfjastofnunar og Embættis landlæknis eiga sæti. Það er bæði gott og rétt, en með fullri virðingu fyrir þeim stofnunum þá eru önnur sjónarmið nauðsynleg inn í þessa vinnu. Það má t.d. spyrja hvort fulltrúum Rauða krossins, og þá sérstaklega verkefnisins Frú Ragnheiður, verði boðið sæti í nefndinni. Hér er um að ræða aðila sem þekkja vel til þess hóps sem þegar stendur höllum fæti, fólks sem þegar er háð umræddum efnum. Þar er hætta á bakslagi ef ekki er gætt að fjölbreyttum skaðaminnkandi viðhaldsmeðferðum, öðrum sértækum meðferðarúrræðum og aðgengi að neyslurýmum samhliða umræddum aðgerðum heilbrigðisyfirvalda. Það er því einkar mikilvægt að talsmenn þessa jaðarhóps fái sæti við borðið í þeim starfshópi sem ráðherra boðar.

Bann- og refsistefna má ekki vera eina leiðarstefið. Við þurfum fjölbreytt úrræði bæði til skaðaminnkunar og til lækninga til viðbótar við nauðsynlegar aðgerðir sem herða aðgengið. Heilbrigðisyfirvöld verða að svara því kalli og það fljótt.

Höfundur er þingflokksformaður Viðreisnar.

Greinin birtist fyrst á Vísi hinn 1. febrúar 2018