Trúin á samvinnupólitík

Ég geng inn í nýtt ár í trú á að um okkur muni leika ferskir vindar og ákefðin til að gera enn betur dvíni ekki heldur haldi og styrki okkur og efli hvar í flokki sem við stöndum.

Ég trúi því að samvinna og samstaða gefi okkur mest. Skili okkur bestu niðurstöðunni fyrir sem flesta. Ég trúi því að pólitíkina megi færa nær slíku vinnulagi. Samtalinu. Því víst er að verkefnin verða ærin. Við þurfum að sameina krafta okkar hvar í flokki sem við stöndum til að ná árangri í umhverfismálum, stærsta verkefni samtímans. Vinna að frekari velferð og vellíðan ólíkra hópa og hlúa að manneskjunni sem best við getum. Styrkja grunnstoðirnar okkar enn frekar og efla getuna til þess að bregðast við þegar á móti blæs.

Ég trúi á að meta krafta ólíkra einstaklinga að verðleikum þegar markmiðið er að gera betur. Og ekki bara betur heldur sem allra best fyrir sem flesta. Það hlýtur alltaf að vera markmið okkar sem gefum kost á okkur til pólitískra starfa. Burt með einstrengingslegar ákvarðanir sem henta afmörkuðum hópum og horfum fremur til framfara samfélagsins í heild.

Þannig langar mig að sjá árið 2020 á hinu pólitíska sviði. Að um leið og við virðum ólíkar skoðanir og hlustum getum við metið saman farsæla niðurstöðu í stað þess að hygla einum fremur en öðrum. Hagsmunirnir liggja í almannahagsmunum fremur en sérhagsmunum. Annars ýtum við undir sundurleitt samfélag, samfélag sem þroskast síður og verður af því að fá að vaxa í þágu einstaklinganna sem sannanlega eru þeir sem skapa samfélagið þegar öllu er á botninn hvolft.

Það skiptir máli fyrir hvert og eitt okkar að þoka málum áfram, sjá afrakstur og árangur þeirra vinnu og málefna sem við stöndum fyrir og því sem við viljum leggja af mörkum fyrir samfélagið.

Stóra myndin er alltaf mikilvægari en einstök áætlun sérsniðin að ákveðnum hópi. Þar verðum við sem kjörnir fulltrúar að hafa styrk til að stíga ofar, horfa yfir sviðið og taka utan um alla þætti samfélagsins í þágu almennings.

Megi árið verða okkur öllum gleðilegt og gjöfult.

Höfundur er oddviti Garðabæjarlistans.

Greinin birtist fyrst á Vísi 2. janúar 2020