08 maí Af góðum hugmyndum og slæmum
Hvernig veit maður hvort hugmynd sé góð eða slæm?
Sú leið sem við notum til að komast að því er hugmyndavinnan sjálf. Hugmyndavinnan er ekki það sama og að fá hugmynd, hugmyndavinnan er það sem gerist í kjölfar þess að hugmynd lýst niður. Hugmyndavinnan fer þannig fram að hugmyndin er tekin og skoðuð frá öllum hliðum, mögulegar afleiðingar rannsakaðar, hugmyndin er gagnrýnd í bak og fyrir. Það má eiginlega segja að hún sé tekin í sundur og sett aftur saman, hent í skilvinduna og ef hugmyndin stendur það af sér, má með sanni segja að um góða hugmynd sé að ræða.
Hugmynd meirihluta Framsóknar og Sjálfstæðismanna um að selja eignarhluta okkar Hafnfirðinga í HS Veitum er hugmynd. Til að ganga úr skugga um að hugmyndin sé góð er það í verkahring okkar sem minnihlutann skipar að taka þessa hugmynd alvarlega og rýna hana frá öllu hliðum til gagns. Að velta fyrir sér mögulegum afleiðingum og miðað við viðbrögð meirihlutans, afleiðingum sem hann sá ekki fyrir.
Ein af meinsemdum stjórnmálanna er sú að hugmyndir eru takmörkuð auðlind í þessum geira. Þetta veldur annarri meinsemd sem er sú að of oft verða stjórnmálamenn ástfangnir af eigin hugmyndum og passa upp á þær eins og þær séu viðkvæmur hvítvoðungur. „Það skal enginn vera vondur við mína hugmynd“.
Þetta leiðir til þess að umræðan um hugmyndina leiðist einum of oft út í einræður um fólkið sem gagnrýnir hugmyndina og ég notast hér við upphaflegu skilgreininguna á gagnrýni; að rýna til gagns. Aftur á móti hefur það ágæta hugtak fengið á sig þann stimpil að vera niðurrif, en ekki rýni til gagns. Tilgangur hugmyndavinnunnar er að stækka hugmyndina, betrumbæta hana og sjá fyrir sér sem flestar mögulegar afleiðingar hennar. Eins og með flestar hugmyndir sem til okkar koma þá líta þær oft vel út við fyrstu sýn, eru fjarskafallegar. En starf okkar snýst um að skella sér í vinnugallann og taka vel á hugmyndinni.
Minn bakgrunnur er úr leikhúsinu, þar eru hugmyndir ekki takmarkandi auðlind. Þumalputtareglan er sú að maður fær a.m.k. 10 vondar hugmyndir áður en góð hugmynd stingur sér niður. Það sama á við í viðskiptalífinu og í stjórnmálum. Við verðum að hafa hugrekkið til að takast á um hugmyndina, álagsprófa hana og rýna.
Á meðan skipulagið í stjórnmálum er eins og nú, að myndaður sé meirihluti sem fer með valdið, þá er það hlutverk okkar sem veljast í minnihluta að álagsprófa hugmyndir valdhafanna.
Góð hugmynd stenst nefnilega álagsprófið og verður fyrir vikið að betri ákvörðun.
Höfundur er oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.