Ég stjórna

Benedikt Jóhannesson

Fyrir löngu hitti ég embættismann úr borgarkerfinu á förnum vegi og spurði hvernig gengi. Hjá mér var engin meining með spurningunni. Viðbrögðin komu þess vegna á óvart. Með sárasaklausri kveðju snerti ég greinilega viðkvæma taug. Maðurinn varð flóttalegur til augnanna, skimaði í kringum sig og dró mig svo inn í húsasund áður en hann svaraði lágum rómi: „Maður veit aldrei hver heyrir til manns.“ Æðsti stjórnandi átti sannarlega ekki að frétta hvað ein af silkihúfum borgarinnar segði á förnum vegi. „Mér finnst nóg að vera tekinn á beinið einu sinni.“

Sagt er að vald breyti fólki. Sumir halda að þegar þeir eru komnir í ákveðna stöðu eigi þeir að breytast úr ljúfmennum í fanta. Um þetta eru margar sögur.

Árið 1993 ákvað Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra að stytta rjúpnaveiðitímann, sem var umdeild ákvörðun. Ráðherrann var afar ósáttur við að starfsmaður undirstofnunar ráðuneytisins (Arnór Þ. Sigfússon) tjáði sig opinberlega um málið, reyndar ekki í krafti embættis heldur sem rjúpnaveiðimaður.

Í nefndaráliti minnihluta allsherjarnefndar Alþingis frá 1995 segir orðrétt: „Hringdi ráðherra þennan dag [á Þorláksmessu] í Arnór, minnti á að hann væri starfsmaður ráðuneytisins og sagði hann hafa farið „yfir grensuna“ í blaðaviðtalinu. Jafnframt tók ráðherra fram að þessu máli væri ekki lokið af sinni hálfu. Þetta upplýsti Arnór á fundi umhverfisnefndar Alþingis 15. apríl 1994. Fyrr þennan sama dag, [ … ] hringdi umhverfisráðherra í Pál Hersteinsson veiðistjóra og hafði uppi aðfinnslur út af viðtalinu við Arnór. Veiðistjóri bar það fyrir umhverfisnefnd Alþingis 15. apríl 1994 að hann hefði svarað ráðherra á þá leið að hann teldi þessar deilur vissulega óheppilegar. Rjúpur og rjúpnaveiði heyrðu hins vegar ekki undir veiðistjóraembættið og ekki væri eðlilegt að hann legði hömlur á málfrelsi starfsmanns síns um slíkt efni þar sem hann tjáði sig sem meðlimur í Skotveiðifélagi Íslands á vettvangi félagsins. Þá á ráðherra að hafa sagt: „Þú stjórnar Arnóri. Ég stjórna þér. Þessi ráðherra er ekki hræddur við að berjast. Ég minni þig í þessu sambandi á framkvæmdastjóra Náttúruverndarráðs sem nú er fyrrverandi framkvæmdastjóri. Gleðileg jól.“

Nýlega stefndi ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur forsætis- og jafnréttismálaráðherra konu fyrir dóm. Sakirnar eru þær að kærunefnd úrskurðaði að menntamálaráðherra hefði brotið jafnréttislög þegar ráðherrann réð flokksbróður sinn, félaga sem nefndin segir ljóst að ekki hafi staðið konunni framar.

Í orði talar ríkisstjórnin um jafnrétti, en þeir sem leita réttar síns hafa nú fengið aðvörun. Þeim verður mætt af fullri hörku.

Önnur ríkisstjórn, aðrir ráðherrar, en sams konar skilaboð: Ég stjórna þér. Gleðilegt sumar!

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 16. júlí 2020