17 nóv Leikjafræði Lilju
Á sunnudaginn var sat menntamálaráðherra í útvarpsviðtali og ræddi um þá niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála að hún hefði brotið jafnréttislög. Í viðtalinu sagði ráðherra eftirfarandi orð; „Ég er ráðherra. Ég er líka einstaklingur og ég verð alveg eins og allir aðrir í íslensku samfélagi, ef ég tel að það sé brotið á mér – þá hlýt ég að eiga sama rétt og viðkomandi einstaklingur að sækja minn rétt.“
Þessi ummæli eru merkileg þegar þau eru rýnd. Ummæli ráðherra bera vott um ákveðið skilningsleysi Lilju Alfreðsdóttur á hennar stöðu sem ráðherra og aðstöðumuninum á ráðherra og einstaklingnum sem hún stefnir. Í viðtalinu talaði ráðherra með þeim hætti að þetta dómsmál snerist um hennar persónu fremur um starfshætti hennar og meðferð valds.
Menntamálaráðherra er hins vegar ekki fyrsti ráðherrann sem fær úrskurð um brot á jafnréttislögum. Aðrir ráðherrar hafa hins vegar ekki farið hennar leið, heldur almennt unað svona úrskurðum. Kannski hafa þeir séð að málin snúast einmitt ekki persónu þeirra heldur um yfirvegaða stjórnsýslu og vandaða. Menntamálaráðherra lýsti því hins vegar yfir í umræðunni að hún hefði sýnt kjark með því að stefna umræddum umsækjanda fyrir dóm. Dæmi hver fyrir sig um það. Menntamálaráðherra lýsti því einnig í þessu sama viðtali að hún hefði sætt þyngri gagnrýni en aðrir ráðherrar í sambærilegri stöðu. Tengdi hún það við kynferði sitt. Mun nærtækari skýring er nú samt sú staðreynd að aðrir ráðamenn hafa einmitt almennt ekki farið fram af þeirri hörku sem hún gerir í kjölfar svona úrskurðar. Það gerðu ekki Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, ekki Jóhanna Sigurðardóttir og ekki Bjarni Benediktsson. Seint verður sagt um þetta ágæta fólk að þau skorti kjarkinn. Mögulega voru aðrir hagsmunir þeim ofar í huga, jafnvel bara stærri hagsmunir.
Embættismennirnir sem ekki getað svarað
Umræddan sunnudag fór menntamálaráðherra sömuleiðis með dagskrárvald sitt þannig að þar sat hún og ræddi í útvarpi um nafngreinda og ónafngreinda embættismenn. Það gerði ráðherra þrátt fyrir að vita ósköp vel að embættismaður svarar ekki ráðherra og þarf því að sitja undir því að ráðherra veitist að þeim, án þess að geta tekið til svara. Þessa leikjafræði höfum fram til þess fyrst og fremst séð hjá fyrrum flokkssystur hennar Vigdísi Hauksdóttur, sem hefur stundað það af kappi að tala niður til embættismanna borgarinnar.
Ummæli menntamálaráðherra í útvarpsviðtali sunnudagsins birta djúpa Framsóknarmennsku, þar sem þeim er gerð upp spilling sem spyrja spurninga og vilja ræða það þegar fram kemur úrskurður um brot á jafnréttislögum. Svör ráðherrans í þingsal í dag voru um kjark sem hún sýnir. Ég verð að viðurkenna að öll nálgun ráðherra í þessu máli finnst mér bera vott um eitthvað allt annað en kjark.