Spilað með öryggis­mál þjóðar

Við býsnumst nú yfir því að veturinn sé skollinn á af fullum krafti. Fyrstu stormviðvaranir komnar og fréttir um lítið ferðaveður heyrast nú reglulega. Við vitum að gular og appelsínugular viðvaranir verða tíðar á næstu mánuðum. Við þekkjum Ísland og íslenskt veðurfar. Veðurofsinn skellur á landið á sama tíma og ekki er aðgangur að þyrlum Gæslunnar vegna verkfalls flugvirkja. Verkfall sem staðið hefur yfir frá 5. nóvember með þeim afleiðingum að viðbragðsgeta Landhelgisgæslunnar er verulega skert. Það er ekki síst grafalvarleg staða fyrir sjómenn og fjölskyldur þeirra. Það sama gildir um viðbragðsaðila í landinu sem munu eiga erfitt með að uppfylla hlutverk sitt meðan aðgengi er lítið að björgunarþyrlum.

Það er með ólíkindum að stjórnvöld hafi ekki gert allt sem í sínu valdi stendur til að ná samningum við flugvirkja Landhelgisgæslunnar. Staðan er fráleit. Eins og stjórnvöld hafi vanrækt ábyrgð sína á þessu sviði og vanmetið frá upphafi þau skref sem stjórnvöld þurfa að taka til að tryggja almanna- og öryggishagsmuni. Því samhliða hagsmunum sjómanna um að hafa tiltækar björgunarþyrlur eru þjóðaröryggishagsmunir mjög ríkir. Höfum hugfast að þegar varnarliðið hvarf af landi brott árið 2006 tóku íslensk stjórnvöld ábyrgð á ýmsum mikilvægum verkefnum sem tengjast öryggishagsmunum þjóðarinnar beint og óbeint. Þar gegnir Landhelgisgæslan lykilhlutverki og henni falin ákveðin ábyrgð.

Meðan ekki er samið við flugvirkja getur Gæslan ekki sinnt mikilvægu öryggishlutverki sínu. Þetta er að gerast á á vakt Sjálfstæðisflokksins sem ber ábyrgð á þessum samningum innan sinna ráðuneyta. Það er fráleitt að stjórnvöld hafi komið sjómönnum, öryggi þeirra og þjóðarinnar allrar í þá stöðu sem nú er. Það dugir ekki að skýla sér á bak við COVID-19. Líkt og sjómenn og viðbragðsaðilar standa alltaf vaktina hvernig sem viðrar, þurfa stjórnvöld að gera hið sama. Annað má flokka undir stórfellda vanrækslu eða verulegt gáleysi. Staðan er grafalvarleg og ábyrgð ríkisstjórnar mikil. Leysa þarf úr þessari kjaradeilu sem fyrst. Öryggismál þjóðar eru í húfi.

Höfundur er formaður Viðreisnar.