Sam­vinna og sam­eining sveitar­fé­laga

Nýlega lagði ráðherra sveitarstjórnarmála fram frumvarp þess efnis að með lögum skuli sveitarfélög lágmarkast við 1.000 íbúa en til þess þarf að sameina sveitarfélög. Markmið sameiningar er skýrt, að sveitarfélög standi undir lögbundinni þjónustu. Til þess að sveitarfélag geti staðið undir ákveðinni grunnþjónustu þarf ákveðið fjármagn og til að þess að tryggja það fjármagn þarf ákveðinn fjölda íbúa sem standa undir útsvarstekjum. Þau sveitarfélög sem ekki standast þær kröfur er tryggt fjármagn í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga til þess að tryggja megi búsetu um allt land. En jöfnunarsjóður er sameiginlegur sjóður sveitarfélaga sem úthlutar fjármagni til allra sveitarfélaga eftir reiknireglu sem fáir hins vegar skilja og er efni í aðra grein.

Berum virðingu fyrir sjálfsákvörðunarréttinum

Við erum flest sammála um að sveitarfélagi beri skylda til þess að skapa sjálfbæra umgjörð þannig að það standi undir sér og haldi sjálfstæði sínu. Þar sem við búum við fámenni og dreifða byggð skiptir samráð og samtal sveitarfélaga máli. Samráð og samvinna er hinn eiginlegi hvati til frekara samstarfs sem farsællega getur leitt til viðræðna um sameiningu. Sameining sveitarfélaga á að byggja á lýðræðislegum vinnubrögðum og sjálfsákvörðunarrétti þar sem ákvörðun er tekin með hliðsjón af veruleika sveitarfélaganna sjálfra.

Ef setja á lög sem skerða eiga sjálfsákvörðunarrétt og frelsi sveitarfélaga í núverandi mynd er mikilvægt að líta til þessa veruleika og hvort sveitarfélag hafi burði til að halda uppi mikilvægri grunnþjónstu eða hvort það þurfi samstarf við önnur sveitarfélög, t.a.m. til að halda úti grunnskóla eða félagsþjónustu ýmiss konar. Sömuleiðis mætti horfa til þess hlutverks Jöfnunarsjóðar í rekstri sveitarfélaga. Leggja til hámarks framlag þannig að þegar yfir mörkin er farið taki krafan um sameiningu við. Það er mín trú að slík nálgun yrði vænlegri til árangurs en að horfa á íbúafjöldann einan og sér sem grunnforsendu sameiningar.

Endurspeglum raunveruleikann í nýju frumvarpi

Að undanförnu höfum við séð sveitarfélög taka þessi skref að eigin frumkvæði og af miklum metnaði þar sem útfærð hefur verið frábær leið lýðræðis með frumkraft heimamanna að vopni. Skýrasta dæmið um slíka nálgun er sameining sveitarfélaga á Austfjörðum sem nú heitir Múlaþing þar sem fókus er settur á byggðarkjarna sveitarfélagsins með “heimastjórn”. Farsæl lausn, þar sem unnið er með þá þætti sem mesta óvissu skapa í slíku ferli: sjálfsákvörðunarréttinn.

Fjölmörg sveitarfélög um land allt eru í samstarfi og standa saman að ákveðinni grunnþjónustu, svo sem félagsþjónustu eða menntun. Ákjósanlegast er að sjá sameiningarferli sveitarstjórna þróast í gegnum slíkt samstarf enda mikilvægt að virða sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga og frelsið sem er svo dýrmætt.

Drifkraftur sameiningar þarf að liggja í verkefnunum sem tryggja byggð og býður upp á framúrskarandi þjónustu. Það hefði að mínu mati verið ákjósanlegra að frumvarp sveitarstjórnarráðherra hefði endurspeglað þennan drifkraft.

Höfundur er bæjarfulltrúi í Garðabæ og uppalin í Reykhólasveit.

Greinin birtist fyrst á Vísi 14. desember 2020