— Stjórn Viðreisnar fordæmir hvers konar ógnanir og ofbeldi gegn stjórnmálafólki. Það er von okkar að viðbrögð samfélagsins alls verði með þeim hætti að árásum þessum linni þegar í stað.

Yfirlýsing frá stjórn Viðreisnar: Ofbeldi í stjórnmálum

Meðal þess besta við að búa á Íslandi er hversu friðsælt samfélag okkar hefur verið. Lengst af hafa kjörnir fulltrúar og leiðtogar í athafnalífi getað lifað lífi sínu án ótta um líkamlegan skaða. Þannig viljum við hafa það.

Það eru því hörmulegar fréttir að skotárás hafi verið gerð á bifreið fjölskyldu borgarstjóra og skrifstofur stjórnmálaflokka. Það er gott að sjá að yfirvöld taka árásina á bifreið fjölskyldu borgarstjóra föstum tökum. En vandamálið endar ekki þar. Umræðumenning á opinberum vettvangi  fer síharðnandi og verður æ ofbeldisfyllri. Við þekkjum það úr stjórnmálalífi annarra lýðræðisríkja að ofbeldi í orði getur fljótt breyst í ofbeldi á borði. Við þurfum að geta verið ósammála um leiðir án þess að það skipti okkur í lið vina og óvina, okkur og ykkur. Það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að stemma stigu við hatursfullri umræðu, strax og hennar verður vart.

Verja þarf grunnstoðir lýðræðisins, sem er þátttaka hvers konar í stjórnmálastarfi, frjáls frá ógnunum, hótunum og ofbeldi.

Stjórn Viðreisnar fordæmir hvers konar ógnanir og ofbeldi gegn stjórnmálafólki. Það er von okkar að viðbrögð samfélagsins alls verði með þeim hætti að árásum þessum linni þegar í stað.

Stjórn Viðreisnar,
Reykjavík, 29. janúar 2021