Góð þrenna? Bú­seta, ungt fatlað fólk og Garða­bær

„Garðabær er ekki þátttakandi í uppbyggingu félagslegs húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu.” Þessa setningu þekkjum við flest sem fylgjumst með samfélagsmálum á höfuðborgarsvæðinu og þó víða væri leitað. Enda hárrétt. Garðabær getur ekki talist taka það verkefni alvarlega að skapa rými fyrir fjölbreyttan hóp fólks sem þarf aðstæðna sinna vegna á félagslegu húsnæði að halda. Hvort heldur sem við á fatlað fólk eða aðra hópa fólks sem þurfa á félagslegu búsetuúrræði að halda.

Ung fatlað fólk bíður eftir sjálfstæðri búsetu

Nú liggur fyrir nokkuð skýr mynd af þörfinni. Meðal þeirra sem bíða lengst eftir sjálfstæðri búsetu er ungt fólk með fatlanir. Það er aðkallandi að bregðast fljótt við stöðu þeirra. Krafan er skýr og lögin eru skýr hvað varðar réttindi fólks til sjálfstæðrar búsetu og val þeirra um búsetu.

Vilji Sjálfstæðismanna í Garðabæ er hins vegar ekki alveg eins skýr.

Hvar er sýnin til framtíðar?

Félagar mínir í meirihlutanum vísa alla jafna til þess að nú sé heldur betur verið að gefa í og hver íbúðakjarninn á fætur öðrum á áætlun. Einn risinn og tveir í farvatninu, þó vissulega eigi eftir að finna þeim þriðja staðsetningu og koma inn á skipulag. Allt tekur þetta tíma og skömm að því að ekki hafi fyrr verið gert ráð fyrir slíkri búsetu í aðalskipulagi þar sem þörfin hefur verið til staðar. Lengi.

Þessi tilþrif bæta því miður ekki úr þeirri brýnu þörf sem er til staðar svo heitið getur. Hér er fyrst og fremst verið að bregðast við löngu úreltu ástandi, og grípa til aðgerða vegna búsetuforms sem enn er við lýði í sveitarfélaginu og fækka sambýlum sem eiga að heyra sögunni til. Því má heldur ekki gleyma að þarfir fatlaðra eru eins ólíkar og fólkið er margt. Íbúðakjarnar henta einungis hluta þeirra sem geta ekki án félagslegs búsetuúrræðis verið.

Heldur er engu til að dreifa þegar kemur að sýn eða áformum til framtíðar. Ekkert plan liggur fyrir og engar upplýsingar sem tilvonandi notendur geta reitt sig á.

Engin svör.

Unga fólkið í forgang

Eftir situr ungt fólk með fatlanir sem ekki sér fram á tækifæri í nánustu framtíð til sjálfstæðrar búsetu sem varða mannréttindi hvers einstaklings.

Við horfum fram á umfangsmikla íbúðauppbyggingu í Garðabæ. Því er lag að bæta lífsgæði hóps sem setið hefur eftir í forgangsröðun Sjálfstæðismanna í áratugi. Ég skora því á félaga mína í bæjarstjórn að leggjast á árarnar og styðja þá tillögu okkar að gera betur í húsnæðismálum ungs fatlaðs fólks.

Greinin birtist fyrst á Vísi 24. febrúar 2021