08 mar Óttinn við samkeppni
Litlum brugghúsum verður leyft að selja vörur sínar á framleiðslustað verði fyrirliggjandi frumvarp um breytingar á áfengislögum samþykkt. ÁTVR hefur gefið út langa umsögn um frumvarpið þar sem fullyrt er að þessi smávægilega breyting höggvi stórt skarð í rekstur ríkisfyrirtækisins og valdi forsendubresti í rekstri þess. Sú umsögn er í besta falli hlægileg.
Brugghúsin sem uppfylla skilyrði frumvarpsins eru 25 talsins og samanlagður hlutur þeirra af álagningu áfengisgjalds á síðasta ári var um 4%. Mörg þessara 25 brugghúsa eru staðsett á landsbyggðinni, og þarf af allnokkur ekki í nágrenni við verslanir ÁTVR. Einörð varðstaða ÁTVR um einokunarstöðu sína og sá mikli ótti við samkeppni sem endurspeglast í umræddri umsögn fyrirtækisins vekur áleitnar spurningar um framtíð þess og erindi. Standi einokunarrekstur ÁTVR það veikt að svo smávægileg breyting valdi forsendubresti hans hlýtur það að gefa tilefni til að endurskoða rekstur og jafnvel tilvist fyrirtækisins.
Umhverfi áfengissölu á Íslandi er ósköp forneskjulegt. Umrætt frumvarp dómsmálaráðherra er lítið skref í framfaraátt. Upprunaleg mynd frumvarpsins gekk þó lengra og heimilaði innlenda netverslun með áfengi, þannig að íslenskir söluaðilar stæðu jafnfætis erlendum. Það hefði verið annað lítið framfaraskref, en ráðherrann féll frá því til að friðþægja íhaldsöflin innan stjórnarflokkana.
Í flestum löndum í kringum okkur er smásala áfengis frjáls. Það er breyting sem við ættum að ráðast í. Sú breyting myndi gera fólki kleift að versla áfengi samhliða öðrum heimilisinnkaupum, eykur þannig lífsgæði og dregur úr bæði ferðatíma og almennri umferð. Það myndi líka styrkja rekstrargrundvöll bæði áfengissölu og matvöruverslanna, sérstaklega á landsbyggðinni, og búa til möguleika á ýmiskonar skemmtilegum sérvöruverslunum. Þá skapar samkeppnin hvata til að huga að hagkvæmni og hágæðaþjónustu sem eru ekki til staðar í einokunarumhverfi. Á yfirstandandi kjörtímabili hefur Viðreisn verið sá flokkur sem talar skýrast fyrir því að þetta stóra skref verði tekið.
Afnám á banni við áfengisauglýsingum væri annað stórt heillaskref sem gott væri að taka. Nýjasta auglýsingaherferð Thule undir slagorðinu “Thule bruggar léttbjór bara til að auglýsa” sýnir vel fram á fáránleika bannsins. Erlend tímarit þar sem áfengisauglýsingar blasa gjarnan við eru til sölu víða um land og þá eiga þær einnig til að dúkka upp á samfélagsmiðlum. Það myndi hjálpa brugghúsum mjög fengju þau að njóta jafnræðis við erlenda samkeppnisaðila þegar kemur að auglýsingum, en á sama tíma gæti það aukið auglýsingatekjur innlendra fjölmiðla og þannig verið liður í að bæta rekstrargrundvöll þeirra.
Viðhorf ÁTVR gagnvart aukinni samkeppni í smásölu og bersýnilegur ótti við hana vekur líka upp spurningar um skoðanir fyrirtækisins á börum og skemmtistöðum. Það er ekki úr vegi að reikna með því að lokanir síðustu mánaða hafi skilað sér í auknum tekjum til ÁTVR. Mun fyrirtækið beita sér fyrir áframhaldandi takmörkunum á opnunartíma skemmtistaða á sama hátt og það beitir sér gegn annarri samkeppni?
Höfundur er forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar.