Hvenær máttu bjóða þig fram?

Elín Anna Gísladóttir 3. sæti Suðvesturkjördæmi 2021 Alþingiskosningar

Þessa dagana eru stjórnmálaflokkar landsins í óða önn að undirbúa framboðslista sína fyrir komandi alþingiskosningar og sitt sýnist hverjum um ágæti þess fólks sem er í framboði.

Í Bítinu á Bylgjunni í vikunni var viðtal við unga konu sem býður sig fram í prófkjöri og hún spurð hvort að það gengi fyrir hana að fara í framboð, því hún væri með ung börn á framfæri.

Ókei, ha? Við skulum stoppa aðeins þarna. Við þessa spurningu var mér strax hugsað til þess hvort að karlkyns frambjóðandi á sama aldri yrði spurður að því sama. Ég hugsa ekki.

Annar frambjóðandi á lista sagði í öðru útvarpsviðtali að enginn ætti að fara í framboð fyrr en viðkomandi væri orðinn fjárhagslega sjálfstæður. Þess vegna væri hann í framboði núna. Hvað felst í því að vera fjárhagslega sjálfstæður er spurning sem ég hefði viljað fá svar við frá viðkomandi frambjóðanda.

Og enn annar frambjóðandi sagði í viðtali í fjölmiðlum að nú væru börnin orðin svo stór að tækifæri gæfist til þess að bjóða sig fram.

Allar þessar athugasemdir fá mig til þess að hugsa hvort það séu fleiri atriði sem fólk telji að séu ekki ásættanleg fyrir frambjóðanda.

Ef tekið er mið af þessum ákveðnu athugasemdum þá virðast reglurnar vera eftirfarandi:

 

  • Ekki eiga of ung börn (ef þú ert kona allavega)
  • Ekki skulda neitt
  • Ekki vera ung manneskja

 

Og svo veltum við fyrir okkur af hverju það sé gjá á milli þings og þjóðar? Af hverju ungt fólk mætir ekki á kjörstað?

Sem betur fer þá hugsa ekki allir svona. Það er bráðnauðsynlegt að þingið endurspegli samfélagið og samfélagið okkar er, sem betur fer, fullt af ungu fólki sem á fullt erindi á þing.

Viðreisn er þeirrar gæfu aðnjótandi að vera með mikið af ungum frambjóðendum á sínum listum fyrir þingkosningarnar í haust. Ungliðahreyfingin er einnig hluti af þeim hópi sem kom að því að stofna flokkinn (hún var meira að segja stofnuð á undan sjálfum flokknum) og hefur sterka rödd inn í þau mál sem flokkurinn setur fram.

Við treystum ungu fólki til ábyrgðar – hvað með þig?

Höfundur skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi.

Greinin birtist fyrst á Vísi 11. júní 2021