Við karlmenn

Sú umræða sem nú fer fram um kynferðislega áreitni og annað kynferðisofbeldi gegn konum og ungum stúlkum setur okkur mörg af minni kynslóð í einkennilega stöðu. Ástæðan er ekki sú að við viljum ekki horfast í augu við vandann heldur kunnum við það ekki.

Þögn um hlutina

Við höfum flest alist upp við að tala ekki um áreitnina og ofbeldið og mörg okkar hafa þurft að burðast með alls konar tilfinningar tengdar kynferðisofbeldi stærstan hluta ævi okkar, svo ekki sé nú talað um þá kynslóð sem á undan mér gekk.

Talað var um að einhver væri kvensamur þegar sá hinn sami var í raun kynferðisafbrotamaður. Hlutirnir voru settir í annan búning og okkur einfaldlega gert að lifa með því.

Karlmenn gerendur

Það er staðreynd að karlmenn eru langoftast gerendur í ofbeldismálum, kynferðisbrotamálum sem og öðrum. Ég upplifði það sem unglingur, að fyrir framan skemmtistaði veltust vel drukknir karlmenn um í slagsmálum og þegar minn tími kom tók ég þátt í þeim af miklum móð.

Við ólumst líka upp við kynferðislegu áreitnina, að konur áttu að hrista af sér klipin í brjóst og rassa og helst geyma það með sjálfri sér, hafi þeim verið nauðgað til að eyðileggja ekki mannorð gerandans.

Það ofbeldi sem við lesum um að á sér stað í miðbæ Reykjavíkur eftir hverja helgi er nánast alltaf vegna karlmanna og fangelsi heimsins eru flest yfirfull af ofbeldisfullum körlum.

Við sem samfélag þurfum að sýna vilja til að horfast í augu við þennan ofbeldisfulla, kynbundna veruleika og leita leiða til að finna betri veg.

Við þurfum aðlögun

Ég bý við þær fjölskylduaðstæður að eiga afkomendur sem ræða kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi opinskátt og eru tilbúin til að svipta hulunni af þeirri ormagryfju sem falið kynferðisofbeldi er.

Ég vil vera þátttakandi í þessu samtali þeirra en viðurkenni fúslega að ég þarf að aðlagast nýjum veruleika. Ég tel víst að slíkt hið sama eigi við um mörg af minni kynslóð og eldri.

Sú gerjun sem á sér stað þessa dagana, og þessi nýi veruleiki fyrir okkur sem eldri erum, mun hafa verulega jákvæð áhrif á samfélagið okkar, því ofbeldi í hvaða mynd sem er á ekki að viðgangast.

Höfundur skipar 1. sæti á lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum.

Greinin birtist fyrst á Vísi 8. júlí 2021