Lán fyrir á­hættu­fíkla eða venju­legt fólk

Jón Steindór Valdimarsson Alþingiskosningar Reykjavík Norður RN 2 sæti Viðreisn

Stærsta fjárfesting hverrar fjölskyldu er oftast kaup á þaki yfir höfuðið. Fæst höfum við ráð á því án þess að taka háar fjárhæðir að láni til margra ára. Höfðuðmáli skiptir að vita hver greiðslubyrðin verður í framtíðinni. Eins og staða mála er í dag vitum við bara í besta falli hver fyrsta afborgun verður. Síðan ekki söguna meir.

Þörf fyrir kristalskúlu

Á að taka verðtryggt lán eða óverðtryggt, á það vera með föstum eða breytilegum vöxtum? Hvað á að gera þegar gluggi opnast fyrir endurfjármögnun á lánstímanum? Það má með sanni segja að hér séu lántakendur settir í stöðu sem er helst fyrir áhættufíkla. Þeir þurfa að velta fyrir sér hver verðbólgan verður, vaxtastigi, gengi krónunnar og þróun launa. Ætti að láta kristalskúlu fylgja hverju láni til að geta rýnt í framtíðina?

Byrðin þyngist og þyngist

Seðlabankinn hækkaði nýverið vexti úr 1% í 1,25%. Stór hluti landsmanna er með íbúðarlán á óverðtryggðum kjörum. Vaxtakostnaður af 30 milljóna króna húsnæðisláni með breytilegum vöxtum hækkar um allt að 75 þúsund krónur á ári eða rúmar 6.000 krónur í hverjum einasta mánuði. Frekari vaxtahækkunum er spáð og greiðslubyrðin mun hækka enn. Þessu til viðbótar er verðbólga mikil, liðlega 4% og ekki útlit fyrir að hún lækki á næstunni.

Ávísun á vandræði

Það er full ástæða til þess að óttast að þessi þróun leiði til þess að margar fjölskyldur lendi í erfiðleikum, ekki síst ungt fólk, sem hefur spennt bogann til hins ýtrasta. Staða þessara lántaka verður erfið, jafnvel óbærileg. Þeir fagna trúlega ekki vaxtahækkuninni eins og Seðlabankastjórinn!

Tækifæri til úrbóta

Aldrei verður hægt að eyða allri óvissu eða áhættu en það er hægt að draga verulega úr henni. Það verður helst gert með því að auka stöðugleika, draga úr gengissveiflum, minnka verðbólgu og halda vaxtastigi lágu. Leiðin til þess er að tengja krónuna við evru með samningi við Seðlabanka Evrópu og í fyllingu tímans með því ganga í ESB og taka upp evru. Það mun skapa nýjar forsendur í fjármálum heimila, fyrirtækja og þjóðfélagsins í heild. Þess vegna er það stefna Viðreisnar.

Gefðu framtíðinni tækifæri – kjóstu Viðreisn.

Höfundur er alþingismaður og skipar 2. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík norður.

Greinin birtist fyrst á Vísi 27. ágúst 2021