18 nóv Viðreisn í Rangárvallasýslu: stofnfundur
![](https://vidreisn.is/wp-content/uploads/2021/11/Vidreisn-i-Rangarvallasyslu-2-1024x1024.png)
Laugardaginn 20. nóvember verður félagið Viðreisn í Rangárvallasýslu stofnað, sem yrði svæðisfélag fyrir öll sveitarfélög sýslunnar.
Stofnfundurinn verður haldinn í Menningarsalnum á Hellu, Dynskálum 8 og hefst kl. 11.00. Léttar veitingar verða í boði og Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi verður sérstakur gestur.
Hefur þú áhuga á að byggja upp frjálslynt samfélag og gagnsæja stjórnsýslu í Rangárvallasýslu? Viltu hafa áhrif á ákvarðanatöku í sveitarstjórnarmálum og stuðla að því að bestu mögulegu ákvarðanir verði teknar, byggðar á faglegum rökum og gagnrýnum vinnubrögðum? Þá viljum við endilega hafa þig með.