22 feb Prófkjör Viðreisnar í Reykjavík 4.-5. mars
Prófkjör Viðreisnar í Reykjavík fer fram dagana 4.-5. mars næstkomandi. Prófkjör hefst á vefnum kl. 9:00 föstudaginn 4. mars og stendur óslitið yfir til kl. 16:00 laugardaginn 5. mars. Jafnframt verður hægt að mæta í Ármúla 42 og kjósa í persónu frá kl. 9:00 til 16:00 laugardaginn 5. mars.
Kosningarétt hafa félagar í Viðreisn sem skráðir hafa verið í flokkinn fyrir miðnætti 1. mars 2022, hafa lögheimili í Reykjavík og hafa náð 16 ára aldri á kjördag.
Hlekkur mun birtast á vefsíðu Viðreisnar fyrir rafræna kosningu og mun þurfa rafræn skilríki eða Íslykil til að komast inn á kjörseðilinn. Þau sem kjósa rafrænt geta breytt atkvæði sínu eins oft og þau vilja þar til kosningu lýkur kl. 16:00 þann 5. mars.
Í framboði eru:
Kær kveðja
Kjörstjórn í prófkjöri Viðreisnar fyrir sveitarkosningar í Reykjavík 2022