20 mar Framboðslisti Viðreisnar í Reykjavík
Framboðslisti Viðreisnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Reykjavík var staðfestur í dag á fjölmennum félagsfundi Reykjavíkurráðs Viðreisnar. Sæti í ráðinu eiga allir meðlimir Viðreisnar búsettir í Reykjavík.
Oddviti listans er Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, sigurvegari prófkjörsins og formaður borgarráðs. Í öðru sæti er Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi. Í þriðja sæti er Þórdís Jóna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri. Í fjórða sæti er Geir Finnsson, framhaldsskólakennari og forseti Landssambands Ungmennafélaga.
Valið var í efstu sæti listans í prófkjöri sem fór fram 4.-5. mars. Tæplega 1.200 atkvæði bárust og var kjörsókn 61%. Úrslit prófkjörs sendar uppstillinganefnd, sem stillti upp lista Viðreisnar í Reykjavík í samræmi við reglur flokksins.
“Þetta er öflugur listi sem sýnir breidd Viðreisnar í Reykjavík. Við erum búsett í öllum hverfum borgarinnar og með fjölbreytta reynslu. Við höfum því skarpa sýn á þarfir Reykvíkinga og munum halda áfram að beita okkur fyrir því að einfalda lífið í borginni og efla öll hverfi til að þar megi finna aukna þjónustu og atvinnulíf,” segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti listans.
Meðalaldur frambjóðenda er 39,5 ár. Yngsti frambjóðandinn verður 18 ára mánuði fyrir kosningar. Elsti frambjóðandinn er 80 ára. Búseta frambjóðenda er um alla borg en flestir frambjóðendur búa í Breiðholti.
Framboðslisti Viðreisnar í Reykjavík 2022:
- Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs
- Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi
- Þórdís Jóna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri
- Geir Finnsson, framhaldsskólakennari og forseti Landssambands Ungmennafélaga
- Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, öryrki
- Erlingur Sigvaldason, kennaranemi
- Emilía Björt Írisardóttir, háskólanemi og forseti Uppreisnar í Reykjavík
- Samúel Torfi Pétursson, verkfræðingur og skipulagsráðgjafi
- Anna Kristín Jensdóttir, náms- og starfsráðgjafi
- Pétur Björgvin Sveinssonm, verkefnastjóri
- Tatiana Ósk Hallgrímsdóttir, forstöðukona
- Sverrir Kaaber, fyrrverandi skrifstofustjóri
- Emma Ósk Ragnarsdóttir, leiðbeinandi á leikskóla
- Arnór Heiðarsson, aðstoðarskólastjóri
- Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir, háskólanemi og forseti Uppreisnar
- Einar Karl Friðriksson, efnafræðingur og einkaleyfasérfræðingur
- Anna Margrét Einarsdóttir, lýðheilsufræðingur
- Bóas Sigurjónsson, framhaldsskólanemi
- Þuríður Pétursdóttir, lögfræðingur
- Máni Arnarsson, háskólanemi
- Hera Björk Þórhallsdóttir, tónlistarkona
- Gunnar Björnsson, forseti Skáksambandsins
- Arna Garðarsdóttir, verkefnastjóri
- Oddgeir Páll Georgsson, hugbúnaðarverkfræðingur
- Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri og formaður íbúðaráðs Grafarholts
- Arnfinnur Kolbeinsson, háskólanemi
- Þyrí Magnúsdóttir, lögfræðingur
- Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, lögfræðingur
- Sunna Kristín Hilmarsdóttir, blaðamaður
- Ingvar Þóroddssson, háskólanemi
- Ilanita Jósefína Harðardóttir, framhaldsskólanemi
- Andri Freyr Þórðarson, verkfræðingur
- Sigrún Helga Lund, tölfræðingur
- Reynir Hans Reynisson, sérnámslæknir
- María Rut Kristinsdóttir, kynningarstýra
- Árni Grétar Jóhannsson, leikstjóri og leiðsögumaður
- Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri
- Hákon Guðmundsson, markaðsfræðingur
- Sonja Sigríður Jónsdóttir, háskólanemi
- Kjartan Þór Ingason, umsjónakennari
- Þórunn Hilda Jónsdóttir, viðburðarstjóri
- David Erik Mollberg, hugbúnaðarsérfræðingur
- Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir, fyrrverandi lektor
- Þorsteinn Eggertsson, textahöfundur
- Diljá Ámundadóttir Zoëga, varaborgarfulltrúi
- Jón Steindór Valdimarsson, fyrrverandi Alþingismaður