Könnun um röðun lista Viðreisnar í Mosfellsbæ

Í dag hefst rafræn, óbindandi skoðanakönnun á meðal félagsmanna Viðreisnar í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þeir félagar Viðreisnar í Mosfellsbæ sem voru skráðir fyrir kl. 12.00 í dag, 2. mars, hafa þegar fengið tölvupóst með hlekk á könnunina.

Sjö manns hafa gefið kost á sér í 1.-6. sæti á lista flokksins í bænum og fá flokksmenn tækifæri í könnuninni til að hafa áhrif á það hvernig raðast á listann í þessi sex efstu sæti. Könnunin stendur til 7. mars nk. og verða niðurstöður hennar birtar opinberlega þegar þær liggja fyrir.

Eftirfarandi hafa gefið kost á sér í efstu sex sætin:

  • Lovísa Jónsdóttir, hugverkalögfræðingur og varabæjarfulltrúi Viðreisnar í Mosfellsbæ, gefur kost á sér í 1. sæti listans.
  • Valdimar Birgisson, sölu- og markaðsráðgjafi og bæjarfulltrúi Viðreisnar í Mosfellsbæ, gefur kost á sér í 1. sæti listans.
  • Elín Anna Gísladóttir, rekstrarverkfræðingur og varaþingmaður Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi gefur kost á sér í 2.-4. sæti listans.
  • Ölvir Karlsson, lögfræðingur, sækist eftir 3.-4. sæti listans.
  • Olga Guðrún Ingólfsdóttir, viðskiptafræðingur, gefur kost á sér í 5. sæti listans.
  • Ari Páll Karlsson, sálfræði- og tónlistarnemi, gefur kost á sér í 5.-6. sæti listans.
  • Ágústa Fanney Snorradóttir, kvikmyndagerðarmaður og framleiðandi, sækist einnig eftir 5.-6. sæti listans.