Úrslit í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík

Prófkjör Viðreisnar í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2022 fór fram dagana 4.-5. mars. Var þetta fyrsta prófkjör Viðreisnar  og völdu flokksfélagar þar frambjóðendur í 4 efstu sætin á framboðslistanum. Félagar gátu valið hvort þeir kusu rafrænt eða skriflega en mun fleiri völdu fyrri kostinn.

Á kjörskrá voru 1.939 manns og bárust alls 1.182 atkvæði. Kjörsókn var 60,96%. Af þeim voru 4 atkvæði auð en ekkert ógilt.

Niðurstöður efstu fjögurra sæta eru eftirfarandi:

Í fyrsta sæti með 575 atkvæði í 1. sæti: Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

Í öðru sæti með 799 atkvæði í 1.-2. sæti: Pawel Bartoszek

Í þriðja sæti með 646 atkvæði í 1.-3. sæti: Þórdís Jóna Sigurðardóttir

Í fjórða sæti með 885 atkvæði í 1.-4. sæti: Diljá Ámundadóttir Zoega

Þetta eru úrslit prófkjörs sem hafa verið afhent uppstillingarnefnd sem síðan þarf að stilla upp lista í samræmi við reglur Viðreisnar, þ.m.t. varðandi kynjahlutföll.

 

Heildarniðurstöður prófkjörsins má sjá hér: