Lengra en Strikið

Ég geng upp Laugaveginn. Á göngugötu-kaflanum tel ég alls 95 rými. Af þeim eru 4 bersýnilega tóm og auglýst “Til leigu”. Í fjórum til viðbótar er verið að standa í framkvæmdum og setja upp nýja starfsemi. Hin rýmin, 87 talsins, eru öll í notkun.

Ég ætla ekki að þykjast vera hokinn reynslu af verslunar- og veitingarekstri. Það er ég ekki. En spár um að göngugatan myndi drepa rekstur í miðbænum hafa augljóslega ekki ræst, þvert á móti.

Þennan dag í apríl 2022 voru sem sagt 92% allra jarðhæða á göngugötunni í notkun og stærsti hluti af restinni á leið þangað. Þetta er tölfræði sem margar verslunarmiðstöðvar um allan heim dreymir um.

Stóðum við okkar en höldum áfram

Viðreisn setti það á oddinn í seinustu kosningum að gera Laugaveginn að göngugötu. Að því höfum við unnið og göngugatan nær nú alla leið upp að Frakkastíg. En við viljum halda áfram. Það er stefna okkar í Viðreisn að færa göngugötuna ofar, upp fyrir Vitastíg og alla leið upp að Barónsstíg. Það ætlum við að gera á næsta kjörtímabili.


                      Strikið borið saman við Göngugötu frá Ingólfstorgi að Hlemmi.

Við Hlemm stendur til að ráðast í miklar breytingar sem byrjað verður á strax í sumar. Laugavegurinn ofan við Hlemm færist ögn norðar. Bílastæðin hjá hótelinu hverfa, við fáum nýtt torg. Laugavegurinn milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs verður göngusvæði.

Þegar þetta verður allt komið vantar í raun aðeins örfáa kafla til að fullklára göngugötuna frá Ingólfstorgi að Hlemmi. Þessir kaflar eru: austasti hluti Austurstrætis, neðri hluti Bankastrætis og Laugavegur milli Snorrabrautar og Barónsstígs. Á þessum seinasta hluta er bílastæðahús sem einhvern veginn þyrfti að leysa en allir þessir kaflar henta mjög vel til að vera göngugata að öðru leyti.

Klárum dæmið

Ein frægasta göngugata Evrópu er Strikið í Kaupmannahöfn. Sú gata er 1,1 km. Frá Ingólfstorgi að Hlemmi eru 1,5 km. Göngugatan okkar mun, líkt og Strikið, liggja milli austurs og vesturs og tengja saman tvö vel heppnuð torg. Við eigum að gera þetta. Og erum raunar þegar byrjuð. Meira en helmingurinn af leiðinni, yfir 750 m, er þegar orðin göngugata. Við eigum að stefna á að klára hitt.

Höfundur er í 2. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík.

Greinin birtist fyrst á Vísi 26. apríl 2022