Allar borgir þurfa Pawel

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Hanna Katrín Friðriksson þingkonur Viðreisnar í Reykjavík

Það eru 11 framboð í Reykjavík. Nokkur hundruð manns sem nú bjóða fram krafta sína til að vinna fyrir Reykvíkinga og stýra borginni okkar næstu árin. Í þessum stóra hópi er fjöldinn allur af frambærilegu fólki með þá þekkingu og getu sem þarf til.

Þegar fjöldi fólks í mismunandi flokkum býður fram krafta sína mætti ímynda sér að valið gæti verið flókið. En í raun og veru snýst það bara um tvennt, málefni og traust. Hvað segjast flokkarnir ætla að gera og getum við treyst því að þeir geri það?

Stefna Viðreisnar í Reykjavík er skýr og árangur flokksins í borgarstjórn síðustu fjögur ár talar sínu máli. Rauði þráðurinn í stefnu flokksins er að sýna ábyrgð og vanda til verka þegar farið er með völd. Að halda áfram ábyrgum rekstri á sama tíma og við stöndum vörð um grunnþjónustuna. Að vinna í þágu almannahagsmuna. Alltaf og alls staðar.

En kosningarnar snúast ekki síður um fólkið sem er í framboði en stefnuna. Einn sá allra besti úr þeirra röðum er Pawel Bartoszek borgarfulltrúi Viðreisnar sem skipar 2. sæti á framboðslista flokksins. Pawel er framsýnn og heiðarlegur stjórnmálamaður sem lætur verkin tala. Veigrar sér aldrei við að taka að sér erfið verkefni, ber virðingu fyrir andstæðum sjónarmiðum og elskar rökræður, stundum jafnvel full mikið fyrir smekk sumra. Hann er hugmyndaríkur og frjór á sama tíma og hann er ábyrgur og lausnamiðaður. Maður sem hefur ástríðu fyrir Reykjavík og hefur skýra sýn á það hvernig borgin okkar getur bæði vaxið og dafnað.

Þetta eru dýrmætir eiginleikar, ekki síst í fari stjórnmálafólks. Það er óhætt að treysta því að Pawel meinar það sem hann segir og gerir það sem hann segist ætla að gera. Reykvíkingar eiga það skilið að hafa Pawel áfram í borgarstjórn. Í þessum kosningum mun hvert atkvæði telja.

X við C þýðir meiri Pawel og betri borg.

Greinin birtist fyrst á Vísi 13. maí 2022