Í tæp 30 ár með skóla­málin í borginni

Þegar kemur að skólamálum í Reykjavík hafa Samfylkingin og fyrirrennar hennar verið við völd nánast samfleytt í 28 ár. Það er því kominn tími á breytingar og nýja nálgun á ýmislegt í þessum mikilvæga málaflokki. Sérstaklega er brýnt að finna lausnir fyrir fjölskyldur og börn í Reykjavík. Kerfið er alltof þungt í vöfum. Við í Viðreisn biðjum um umboð til gagngerra breytinga á skólakerfinu.

Staðan nú er sú að við náum ekki að mæta fjölskyldum og þeirra þörfum. Til að finna leiðir hvernig við gerum það þarf að treysta skólafólki fyrir störfunum sínum. Það væri stökk inn í betri og bjartari framtíð.

Valdsvipting stjórnenda og kennara

Við í Viðreisn viljum treysta stjórnendum og starfsfólki skólanna og sjá til þess að starfsemi skólanna verði á þeirra forræði. Skólafólkið sjálft ber ábyrgð á að skapa góðar aðstæður á hverjum degi fyrir börn og til þess að þær verði sem bestar þarf að styðja mun betur við umhverfi kennara og starfsfólks.

Það er lykilatriði að hver og ein manneskja sem kemur að barni finni að sér er treyst og hafi umboð yfir sínu starfi. Við viljum færa valdið frá miðstýringu embættismanna og til skólanna. Starfsfólksins í skólunum sjálfum.

Skólastjóri á að hafa sama vald yfir eigin skóla líkt og leikhússtjóri Borgarleikhússins. Óskorað vald til að ráða það fólk sem þarf til að leikhúsið virki. Það efast engin um að það er verkefni leikhússtjóra. Það sama á við um skólastjóra – það er á þeirra ábyrgð að hafa sýn og þá flóru af starfsfólki sem skólinn þarf á að halda hverju sinni til að uppfylla hlutverk sitt.

Mætum hverju barni

Við í Viðreisn höfum skýra sýn um valdeflingu stjórnenda og kennara. Skýra sýn á að mæta hverju og einu barni og að öll börn njóti sín og blómstri. Við viljum að samsetning og umgjörð skólanna nái að mæta ólíkum þörfum barna. Það þarf nýja nálgun og uppstokkun á kerfinu sem felur í sér að vald og ábyrgð fari til skólanna, stjórnenda og kennara því engir tveir skólar eru eins.

Það er staðreynd að við verðum að gera miklu miklu betur í að styðja við starfið í skólum borgarinnar enda verður það æ flóknara með hverjum deginum. Barni sem líður vel er nám eðlislægt. Það er skýlaus krafa að efla öll börn og það er fátt sem eflir börn og samfélag meira en góðir skólar. Það hlutverk að efla börnin liggur hjá kennurum og stjórnendum skólans og þau vita hvað þarf til.

Málaflokkurinn í nýjar hendur

Það er kominn tími til að gefa nýjum hugmyndum og annarri nálgun tækifæri í skólamálum í Reykjavík.

Við í Viðreisn höfum sýnt á síðastliðnu kjörtímabili að við treystum fólki og fyrirtækjum. Nú er kominn tími á að sýna skólastjórnendum og kennurum að þau eiga skilið þetta sama traust sem þau hafa svo lengi kallað eftir.

Greinin birtist fyrst á Vísi 13. maí 2022