Lítil börn í stórum skólum

Það er mikill munur á grunnskóla og leikskóla. Leikskólar eru yfirleitt litlir með viðmið um fá börn á hvern kennara á meðan fjöldi barna í umsjón hvers kennara getur farið vel yfir 20 í grunnskóla. Það er líka mikill munur á börnum milli þessara skólastiga. Menntunin sem fram fer í leikskólum er jafnmikilvæg grunnskólamenntuninni þó henni sé hagað á allt annan hátt.

Það er góð þroskafræðileg ástæða fyrir því að langflest lönd miða við 6 ára sem fyrsta ár grunnskólans og aðeins 11% allra landa í heiminum láta hann byrja fyrr. Það er vanhugsað hjá Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, að leiðin til að spara fjármuni sé að stytta leikskólann og að þá verði hægt að taka þar inn fleiri börn. Að þessari hugmynd sé ætlað að upphefja leikskólastarfið og leysa mönnunarvandann staðfestir að ekki hefur verið talað við marga kennara um hugmyndina.

Ánægja foreldra með leikskóla

Ég efast um að margir foreldrar fagni þeirri snöggsoðnu hugmynd að færa fimm ára barnið þeirra í grunnskóla. Þau sem hafa verið með barn í grunnskóla þekkja þann gífurlega mun sem er alla jafna á nálgun og umhverfi barna milli þessara skólastiga. Af hverju að taka gleðina og áhyggjuleysið sem börn njóta í leikskólum frá þeim ári fyrr?

Foreldrar treysta leikskólum vel fyrir börnunum. Það er ekki sjálfgefið þegar um ræðir það dýrmætasta af öllu í lífi foreldra enda gera þeir miklar kröfur til leikskólastarfsfólks. Á hverju ári eru gerðar ánægjumælingar og leikskólar státa af ánægðum foreldrum. Traust og ánægja foreldra og gæði þjónustunnar eru afleiðing þess að í leikskólanum starfar fagfólk sem þekkir þroska yngstu Reykvíkinganna vel og hefur byggt upp umhverfi sem hentar.

Verndum æskuna

Það eru mikil viðbrigði fyrir börnin að hefja grunnskólagöngu, þar sem aðrar og nýjar kröfur eru gerðar til þeirra. Til eru dæmi um fimm ára bekki við grunnskóla sem og samrekstur leik- og grunnskóla þar sem vel hefur tekist til og ánægja barna, foreldra og kennara er mikil. Það er hins vegar allt annað en kerfisbreyting sem hefði áhrif á alla skóla borgarinnar, miklar breytingar í starfsmannahaldi og ófyrirséðan kostnað.

Þau börn sem eru í leikskóla í dag gætu orðið yfir 100 ára gömul. Viðreisn vill ræða um allt lífskeið Reykvíkinga með þá framtíðarsýn í huga að öll eigi að fá notið hvers æviskeiðs sem best. Umræða um styttingu skólastiga er í hrópandi mótsögn við þá stefnu. Það er eðlilegra að huga að lengri tíma þar sem leikurinn ræður för þar sem menntun er hluti af öllu lífsskeiðinu. Við byggjum áfram upp gott leikskólastarf og tryggjum með því góða menntun og öruggt umhverfi, í leikskólum sem eru hannaðir til að mæta börnum á fyrsta æviskeiðinu. Verndum æskuna.

Greinin birtist fyrst á Vísi 6. maí 2022