Tæki­færi sveitar­fé­laga í um­hverfis­málum

Þegar kemur að málefnum umhverfisins er ákalli til aðgerða sjaldan beint að sveitarfélögunum okkar. Það er þó mikill misskilningur að sveitarfélög eigi engin verkfæri til að hafa áhrif. Umræðan einangrast oft við samgöngur og sorp, en við þurfum að snúa athyglinni líka að vistkerfunum, ekki seinna en núna.

Sameinuðu þjóðirnar lýstu áratuginn 2021-2030 áratug endurheimtar vistkerfa. En hvað er svona merkilegt við það? Vistkerfi Íslands eru mörg að hruni komin, sem leiðir til stórfelldrar losunar gróðurhúsalofttegunda. Í losunarbókhaldi Íslands kemur fram að 67% heildarlosunar megi rekja til landnotkunar! Sextíu og sjö prósent! Það eru ⅔ af heildarlosun landsins!

En hvað er til ráða? Jú, að endurheimta vistkerfin. Með endurheimt vistkerfa drögum við úr þessari umfangsmiklu losun, eflum líffræðilega fjölbreytni og styrkjum viðnámsþol svæðanna gegn raski.

Hvernig er það gert? Með útbreiðslu landlægra trjátegunda, líkt og birki. Með endurheimt votlendis, þ.e. hækkun vatnsstöðu. Með því að hindra rask af völdum sandfoks o.fl. því vistkerfin okkar ráða mörg ekki við það eins og staðan er í dag. Með friðun lands. Með því að efla gróðursæld landlægra plöntutegunda.

Tækifæri til að gera betur

Hvað hafa sveitarfélög með þetta að gera? Sveitarfélög eiga mörg afar mikið land og á þessum jörðum fyrirfinnast, eins og gefur að skilja, vistkerfi. Markmið ríkisstjórnarinnar um 55% samdrátt í losun árið 2030 undanskilur umfangsmesta flokkinn í losunarbókhaldi Íslands sem er alvarleg vanræksla. Það gengur ekki að líta bara framhjá vandamálinu af því að það er flókið að eiga við það. En málið er að það er í raun ekki svo flókið að eiga við þennan vanda, upplýsingar um umfang og lausnir á honum liggja fyrir. Verkefni eins og Bændur græða landið og sú margþætta uppgræðsla sem Orkuveita Reykjavíkur réðist í fyrr á öldinni hafa borið ómældan árangur. Reykjavík, sem og öll önnur sveitarfélög, eru í lykilstöðu þegar kemur að endurheimt vistkerfa.

Sveitarfélögin þurfa að stíga fram og axla ábyrgð á því gríðarstóra verkefni sem framundan er þegar kemur að endurheimt vistkerfa okkar, með markvissum aðgerðum í þágu náttúrunnar og loftslagsins. Fyrir bætta framtíð, fyrir áreiðanlegar auðlindir, fyrir unga fólkið, fyrir dýrin og fyrir jörðina skulum við endurheimta vistkerfin.

Greinin birtist fyrst á Vísi 4. maí 2022