Skattpíningin er mest í Hafnarfirði í samanburði við Kópavog og Reykjavík

Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar var samþykkt í desember sem og fjárhags­áætlun annarra sveitarfélaga. Meiri­hlutinn dásamar stöðuna og mærir störf sín þrátt fyrir það að reglulegar tekjur standa ekki undir reglulegum útgjöld­um, eignasala dekkar mismuninn eins og vanalega, nema hvað?

En það er erfitt að meta árangur nema í samanburði við önnur sambærileg sveitar­félög. Ágætt sjónarhorn er að bera saman rekstur og efnahag á hvern einstakling í stað þess að bera saman heildartölur.

Berum saman þrjú stærstu sveitarfélögin Reykjavík, Kópavog og Hafnarfjörð.

Samanburður á fjármálum Reykjavíkur, Kópavogs og Hafnarfjaraðr.

Mesta skattheimtan er í Hafnarfirði 1.265 þúsund á mann, minnst er hún í Kópavogi 1.142 þúsund en Reykjavík er örlítið dýrari 1.171 þúsund á mann. Rekstrarkostnaður er hæstur í Hafnar­firði 1.153 þúsund á mann en lægstur í Kópavogi 1.031 þúsund á mann og aftur er Reykjavík á milli með 1.133.

Stærstur hluti rekstrargjalda sveitar­félaga eru laun og launatengd gjöld. Það vekur athygli að af þessum þremur stærstu sveitarfélögum landsins fer lægra hlutfall kostnaðar í laun í Hafnar­firði eða rúm 57% en hlutfallið er ríflega 60% hjá Reykjavík og Kópa­vogi. Launakostnaðurinn er samt lægstur hjá Kópavogi þar sem hann er 622 þúsund krónur á hvern íbúa, 666 þúsund á hvern íbúa Hafnarfjarðar, hæstur er hann í Reykjavík 685 þúsund.

Heildarskuldir á hvern íbúa eru langhæstar í Hafnarfirði þar sem hver íbúi skuldar 1.637 þúsund krónur, hver Kópavogsbúi skuldar 1.255 þúsund og hver Reykvíkingur skuldar 1.368 þúsund.

Skýringin á meintum árangri er fyrst og fremst auknar álögur á Hafnfirðinga. Ef það er markmiðið, þá hafa Sjálf­stæðisflokkur og Fram­sókn náð mikl­um árangri. Til hamingju með það. En það er ljóst af þessum samanburði að í Hafnarfirði eru mikil tækifæri til þess að bæta reksturinn og gera hann sjálfbæran.

Greinin birtist fyrst í Fjarðarfréttum 2. febrúar 2023