Fjár­mála­á­ætlun – um­búðir um ekki neitt

Það voru margir sem biðu óþreyjufullir eftir framlagningu fjármálaáætlunar sem nú hefur litið dagsins ljós. Ástæðurnar fyrir þessum spenningi eru augljósar. Heimilin glíma nú við mestu verðbólgu frá hruni, endurteknar vaxtahækkanir, stóraukna greiðslubyrði lána og mikla hækkun matarverðs. Fólk vonaði að ný fjármálaáætlun myndi bera þess skýr merki að fjármálaráðherra myndi nota ríkisfjármálin til að vinna gegn verðbólgunni og bæta hag heimilanna.

Vonbrigðin verða því mikil núna þegar kemur í ljós að það er ekkert í áætluninni bendir til þess að staðan muni eitthvað lagast. Seðlabankinn er áfram skilinn eftir einn með það viðfangsefni að ná verðbólgu niður með þeim árangri að mörg heimili eru að bugast undan stóraukinni greiðslubyrði lána.

Það er erfitt að ná utan um hverju þessi fjármálaáætlun á að skila öðru en því að halda sjó.

Á tekjuhlið eru það helst að skattar á hreinorkubíla verða hækkaðir, gistináttagjald tekið upp að nýju, skattar á fyrirtæki verða hækkaðir um 1% í eitt ár, endurgreiðsla á VSK verður minnkuð úr 60% í 35% og síðan mjög óljós áform um hækkun auðlindaskatta sem gætu hugsanlega (eða ekki) komið til framkvæmda á seinni hluta fjármálaáætlunar eða þegar þessi ríkisstjórnin verður væntanlega farin frá. Allar þessar aðgerðir eiga að koma til framkvæmda í framtíðinni þótt vandinn sé núna.

Margir stjórnarliða höfðu síðustu daga og vikur gefið í skyn að einhverjar breytingar kynnu að vera í vændum. Talað hefur verið um hvalrekaskatt, bankaskatt og hækkun auðlindagjalda, og hafa stjórnarliðar m.a. nefnt það í greinaskrifum að nú þyrftu breiðu bökin að taka á sig auknar byrðar.

Ekkert af þessu er að finna í fjármálaáætlun og greinilega ekki á dagskrá ríkistjórnar að fara í slíkar aðgerðir.

Ekki er heldur að sjá að verið sé að taka til á útgjaldahlið fjármálaáætlunar. Verið er að hækka aðhaldskröfu á suma málaflokka úr 1% – 2% og skoða á möguleika á að samnýta húsnæði stofnana betur. Þetta dregur eitthvað úr útgjöldum en dugar hvergi nærri til.

Tískuorð fjármálaráðherra þessa stundina er frumjöfnuður sem útlit er fyrir að verði jákvæður á þessu ári. Það færi þá betur á því að sá „frumjöfnuður“ héldi sér út tímabil áætlunarinnar en ekki er útlit fyrir það. Síðast voru það „afkomubætandi aðgerðir“ sem voru tískuorðin.

Það eru því vonbrigði að ekki sé hægt að finna aðgerðir sem geta hjálpað í baráttunni við verðbólguna og til þess að hjálpa heimilunum í landinu.

Það verkefni bíður því næstu ríkisstjórnar hvenær sem það verður. Vonandi verður það sem fyrst.

Greinin birtist fyrst á Vísi 31. mars 2023