Hengilás fyrir forseta Alþingis

Það var dapurlegt að taka þátt í atkvæðagreiðslunni á Alþingi í fyrradag um fyrirspurn vegna Lindarhvols. Í stað þess að virða rétt þingmanna og almennings til að fá upplýsingar um mál sem varðar eigur almennings upp á hundruð milljarða, er reistur hár og voldugur þagnarmúr þar sem forseti Alþingis er verkstjórinn.

Það liggur fyrir, klárt og kvitt, að settur ríkisendurskoðandi sendir forseta þingsins afrakstur vinnu sinnar um Lindarhvol. Og þessi ríkisendurskoðandi vill að forseti birti afraksturinn og deili með öðrum þingmönnum. Enda lítur Sigurður Þórðarson, ríkisendurskoðandi í þessu tiltekna máli, svo á að hann sé í vinnu fyrir almenning sem eigi rétt á að vita hvers hann varð vísari í störfum sínum. Þar með er málið á forræði þingsins.

Forseti þingsins neitar að birta greinargerðina, þrátt fyrir að allir aðrir í forsætisnefnd vilji aflétta leyndinni. Það var staðfest með nýrri atkvæðagreiðslu í nefndinni í fyrradag. Fleiri stjórnarliðar stigu svo fram í atkvæðagreiðslunni í þingsal og sögðust vilja birta gagnið.

Sú spurning er því orðin verulega áleitin hvort það sé ekki bara meirihluti forsætisnefndar, heldur líka meirihluti þingsins, sem vill birta greinargerðina

Þau rök hafa heyrst að birting vegi að sjálfstæði Ríkisendurskoðunar. Þeir sem nota þau rök verða að íhuga með sjálfum sér að Alþingi fer sjálft með veigamikið eftirlitshlutverk gagnvart framkvæmdavaldinu.

Það eftirlitshlutverk verður að virkja þegar fyrir liggur að tveir fyrrverandi ríkisendurskoðendur, sem báðir hafa rannsakað starfsemi Lindarhvols, eru ekki sammála um hvað gekk þar á, þegar eigur almennings voru seldar.

Ætlar Alþingi Íslendinga að umgangast eftirlitshlutverk sitt með þeim hætti að öðrum þeirra sé trúað í blindni en ekki hinum? Án þess að öll gögn málsins hafi verið birt? Og er það virkilega svo að þegar settur ríkisendurskoðandi, sem er trúnaðarmaður Alþingis og kosinn af þinginu, vill opinbera vinnu sína í þágu almennings, að þá sé það forseta þingsins að setja greinargerðina ofan í skúffu, loka, læsa og henda lyklinum í sjóinn.

Þingmenn VG þurftu að fresta atkvæðagreiðslu í klukkutíma í fyrradag til að funda um málið. Héldu þá margir á Alþingi að skriður væri að komast á málið. Niðurstaða fundarins var hins vegar augljóslega sú að kaupa rammgerðan hengilás fyrir forseta Alþingis.

Greinin birtist fyrst á vísir.is 8. mars 2023