Raf­magnað sam­band skemmti­ferða­skipa

Það verða tímamót í dag í gömlu höfninni í Reykjavík við Faxagarð. Þá verður fyrsta skemmtiferðaskipið, Hurtigruten Expeditions, tengt við rafmagn í höfn en Faxaflóahafnir er ein af 2% hafna á heimsvísu með slíka tengingu. Með landtengingunni opnast einnig möguleiki á kolefnislosunarlausum heimsóknum skemmtiferðaskipa í Faxaflóa þegar um svokölluð hybrid skip er að ræða. Landtengingin í dag við skemmtiferðaskip Hurtigruten er skref í átt að því að landtengja öll skip við hafnir Faxaflóahafna.

Einungis þau stærstu eftir

Nú þegar eru fiskiskip landtengd við bryggju og í lok árs 2022 var tekin í notkun landtenging við stærstu gámaskip Eimskipa. Í dag tengjum við minnstu gerð skemmtiferðaskipa. Eftir að hafa byggt upp kerfi rafmagns landtenginga fyrir minni skip og báta er komið að því að Faxaflóahafnir ráðist á garðinn þar sem hann er hæstur og tengi allra stærstu skipin. Þetta verður krefjandi og kostnaðarsamt verkefni sem gert er ráð fyrir að ljúka á næstu þremur árum. Stærstu skemmtiferðaskipin munu þurfa rafmagn á við heilt þorp, og það er ekki einfalt mál að geta stungið þorpi í samband þegar á þarf að halda. Einnig þarf að hafa í huga að ekki hafa öll skip tæknina til að stinga í samband strax en þeim mun vonandi fjölga þegar tengingarnar verða komnar.

Hvað hefur áunnist?

Með landtengingum skipa hafa Faxaflóahafnir hafa unnið að að bættum loft- og hljóðgæðum í borginni enda eru öflugar landtengingar skipa í höfnum Reykjavíkur afar mikilvægur liður í loftslagsmarkmiðum Reykjavíkurborgar. Fyrir umhverfið er ávinningurinn er þríþættur. Í fyrsta lagi draga tengingar eins og þessi úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í öðru lagi draga þær úr útblæstri loftmengandi efna líkt og við höfum séð í bláum reyk norðan heiða og sunnan í sumar. Í þriðja lagi bæta þær hljóðvist, þegar olíuvélar eru ekki í gangi.

Öll sem eitt

Samtakamátt þarf til að verkefni af þessari stærðargráðu verði að veruleika. Fjöldi fyrirtækja og starfsfólk Faxaflóahafna hafa unnið að þessu markmiði sleitulaust undanfarin ár. Byggja þarf upp aðveitustöðvar í samvinnu við Veitur og miðla þarf orku til stærri landtenginga við Skarfabakka. Á meðan að skip Hurtigruten eru rúmlega fimmhundruð gestir, dveljast nokkur þúsund manns í stærri skemmtiferðaskipum, bæði farþegar og starfsfólk, sem njóta þar einnig fjölbreyttar þjónustu sem krefst orku. Að tengja stærri skemmtiferðaskipin við rafmagn er því á við að bæta meðal sjávarþorpi við kerfið, með nauðsynlegum háspennistöðvum og tengibúnaði. Það er ekki einfalt verkefni.

Meira líf við Gömlu Höfnina

Reykjavík hefur vaxið utan um Gömlu Höfnina á liðnum áratugum og því er þessi landtenging sérlega mikilvæg fyrir Reykjavíkurborg. Hér er um að ræða tímamóta verkerkefni á sviði loftslagsmála á Íslandi og þó víðar væri leitað þar sem unnið er að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda og lofmengandi efna frá skemmtilferðaskipum.

Ég vil óska Reykvíkingum til hamingju með áfangan og um leið nota tækifærið og þakka starfsmönnum og stjórn Faxaflóahafna fyrir að gera þetta að veruleika.

Greinin birtist fyrst á Vísi 19. september 2023