02 okt Hinn grimmi húsbóndi
Ég held að það sé bara best að þið takið verðtryggt lán, já og lengið í lánunum. Þetta eru ráðleggingar Seðlabankastjóra til millistéttarinnar. Það gengur bara svo vel í efnahagslífinu að við ráðum ekki neitt við neitt, við erum fórnalömb velgengninnar.
Hér er einmitt kjarni málsins, millistéttin borgar alltaf brúsann hvort heldur gangi vel eða illa. Millistéttin borgaði fyrir Hrunið með því að tapa nánast öllu eigin fé, með því að greiða hærri vexti, hærra verð fyrir matarkörfuna, hærri skatta og margir misstu heimili sín.
Undanfarið höfum við búið við mikið þensluástand í atvinnulífinu. Þenslan kallar á mikinn mannafla sem eykur umsvif og þar með hagvöxt en hagvöxtur á Íslandi, þegar horft er til hagvaxtar á hvern íbúa, er hann með því minnsta sem gerist eða 0,7% og þetta gerist í tæplega 8% veðbólgu og 9% stýrivaxtastigi. Við erum með öðrum orðum að keyra ansi hratt á sumardekkjum í hálku. Bílstjórinn segir að hraðinn og hálkan komi sér ekki við og aðstoðarbílstjórinn er búinn að missa trúna á bremsubúnaði bílsins. Þessi bíltúr getur bara endað á einn veg og það er úti í skurði. Bílstjórinn vonar að skurðurinn verði mjúkur, millistéttin í aftursætinu spennir beltin og bíður þess sem koma skal.
Flestar efnahagsbólur byrja á fasteignamarkaði, sáum það þegar síðasta bóla sprakk 2008. Í dag eru afleiðingar hagstjórnarinnar þær að húsnæðisskortur verður hér viðvarandi vandamál um langt skeið. Þetta getur bara endað á einn veg og það er með ósköpum. Allt tal um annað er bull í bala þegar stefna stjórnvalda er að gera ekki neitt en vona það besta.
Millistéttin mun á endanum borga brúsann, hún mun borga fyrir þetta með fátækt á efri árum því hún sér enga leið út úr vandanum en að fara að ráðum Seðlabankastjóra og lengja í lánum sínum og greiða afborganir af láninu sínu fram í andlátið. Draumurinn um gluggapóstslaust ævikvöld fjarlægist með degi hverjum.
Krónan er grimmur húsbóndi og heimtar sitt. Hún heldur fólki í hárri greiðslubyrði allt of lengi. Það eru grimm örlög allt of margra að falla úr millistétt í fátækt eða þrældóm á efri árum.
Millistéttin hefur alltaf borgað brúsann, efsta lag samfélagsins hefur tök á því að forða verðmætum sínum áður en skellurinn kemur. Efsta lagið flýgur brott á vængjum vænna skúffufyrirtækja, vitandi vits að millistéttin mun standa sína plikt og taka svo vel á móti erlendum gjaldeyri frá efsta laginu þegar allt er farið í skrúfuna.
Og svo hefst hringrásin aftur……………….og aftur…………….og aftur………………….