Fækkum rauðu rósunum

Það var afar áhrifamikið að vera á Austurvelli á laugardaginn en þar var aðgerðarleysi stjórnvalda í garð fólks með fíknisjúkdóm mótmælt. Erfiðast var að fylgjast með aðstandendum fólks sem hefur látist leggja rósir á tröppurnar við Alþingishúsið. Að sjá mæður með ung föðurlaus börn og tárvota foreldra að syrgja barnið sitt er auðvitað mjög sorglegt en að sama skapi vitnisburður um hve vandinn er alvarlegur. Stefnuleysi stjórnvalda er sömuleiðis sorglegt en það hefur ekki verið í gildi stefna í áfengis og vímuvörnum síðan árið 2020. Fólk deyr í tugatali á hverju ári og samt er ekki unnið eftir neinu langtímaplani. Ég sagði í ræðu á mótmælunum að þetta væri óboðlegt og ekki í neinu samræmi við ástandið.

Ég hef nú lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem þess er krafist að slík stefna verði mótuð og að hana eigi að leggja fram ekki síðar en í vor. Við hljótum að gera allt sem við getum til þess að fækka dauðsföllum og hlúa betur að fárveiku fólki. Þetta er mjög flókinn heilbrigðisvandi sem ekki er hægt að leysa með plástrum hér og þar, heldur þarf að vera í gildi skýr stefna til framtíðar. Fárveikt fólk með banvænan sjúkdóm á ekki að þurfa að bíða mánuðum saman eftir aðstoð. Úrræðaleysið er algert og því þarf að breyta.

Það er orðið tímabært að stjórnvöld og samfélagið allt meðtaki þá staðreynd að þessir 80 til 100 einstaklingar sem látast úr þessum sjúkdómi á ári hverju er fólk af holdi og blóði. Fólk sem hefði getað lagt margt gott til samfélagsins, skapað margvísleg verðmæti, ef sjúkdómurinn hefði ekki tekið völdin. Það er líka tímabært að við áttum okkur öll á því að markvissar aðgerðir, hvort sem er í forvörnum, meðferðarstarfi eða með eftirfylgni, geta dregið umtalsvert úr álagi á löggæslu, dómstóla, fangelsi, heilbrigðiskerfið og önnur velferðarkerfi okkar. Skynsöm stefna til lengri tíma getur sparað peninga.

Skýr stefna í áfengis og vímefnavörnum sendir skýr skilaboð um að okkar veikasta fólk skiptir máli. Það er ekki afgangsstærð eða jaðarhópur sem á minni rétt til heilbrigðisþjónustu en aðrir. Okkur ber skylda til þess að fækka þeim rauðu rósum sem lagðar eru á tröppur Alþingishússins af ástvinum þeirra sem látast úr þessum grafalvarlega sjúkdómi.

 

Greinin birtist fyrst á Vísi 12. desember 2023