19 jan Allt er breytt
Allt er breytt, jarðhræringarnar á Reykjanesskaga og hamfarirnar í Grindavík hafa breytt öllum forsendum byggðarþróunar á höfuðborgarsvæðinu. Við þurfum að skoða skipulagsmálin upp á nýtt. Vænt fólksfjölgun næstu áratuga mælist í tugum þúsunda og ætla má að flestir þeirra muni vilja búa á SV horninu. Hvernig ætlum við að þróa höfuðborgarsvæðið í þessum nýja veruleika?
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins verður væntanlega ekki stækkað í suður í átt til Suðurnesja. Meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokksina í Hafnarfirði hefur horft hýru auga til þessa möguleika. Það er varla lengur á borðinu, einnig er ljóst að hamfarirnar munu að öllum líkindum hægja á hinni hröðu uppbyggingu á Suðurnesjum.
Ljóst má vera að horfa þarf inn á við og þétting byggðar innan höfuðborgarsvæðisins verður mikilvægari en áður. Ekki er ólíklegt að byggðin muni þróast hraðar í kringum Árborg og Þorlákshöfn. Það myndi ekki koma mér á óvart að Þorlákshöfn myndi ná Hafnarfirði að stærð upp úr 2050. Sama má segja um Akranes og Vesturlandið allt, líklega munu þau svæði styrkjast mikið á komandi árum og áratugum.
Fyrir sveitastjórnarfólki blasir við nýr raunveruleiki þegar kemur að þróun byggðar á SV horninu. Byggð í Hafnarfirði mun varla teygja sig lengra til suðurs. Móðir náttúra hefur minnt á sig og við verðum að hlusta og hlýða.
Fyrir okkur Hafnfirðinga er mikilvægt að láta kortleggja svæðin í kringum bæinn okkar til að fá nýjustu og bestu upplýsingar um jarðfræðilega stöðu. Bæjarstjóri segir að Hafnfirðingar bíði rólegir eftir hættumati, það er væntanlegt með vorinu. Ég veit ekki hversu rólegir Hafnfirðingar eru vegna þessa en hvað sem úr því mati kemur, má alveg slá því föstu að hættan hefur aukist til muna. Þróun byggðar mun því taka töluverðum breytingum.
Það er í það minnsta ekki er í lagi er að stinga höfðinu í sandinn og vona það besta og halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Við verðum að sýna forsjálni og ábyrgð og skoða skipulagsmálin upp á nýtt.