Svandís og sjallarnir

Enn eina ferðina eru ríkisstjórnarflokkarnir tveir, VG og Sjálfstæðisflokkur, að opinbera vandræðaganginn á stjórnarheimilinu. Að venju fylgist Framsókn hnípin með. Núna eru það lögbrot Svandísar Svavarsdóttur í hvalveiðimálinu sem ógna stjórnarsamstarfinu.

Sjálfstæðismenn verða að svara því skýrt hvort Svandís Svavarsdóttir njóti trausts þeirra. Hún er ráðherra í þeirra skjóli. Staðan núna hefur ekkert með stjórnarandstöðuna að gera eða áform hennar þegar þing kemur saman. Það gerist eftir tvær vikur og þar sem vika er langur tími í pólitík, hljóta tvær að vera heil eilífð.

Það liggur alveg fyrir að stjórnarandstöðuþingmenn styðja ekki ráðherra þessarar ríkisstjórnar, hvorki staka né sem hóp, og sætir það varla tíðindum. Stóru tíðindin eru auðvitað að þingmenn Sjálfstæðisflokksins styðja sennilega ekki lengur einn ráðherra ríkisstjórnarinnar. Þá liggur auðvitað fyrir að ráðherrann verður að víkja, nú eða stjórnin að fara frá. Þetta er því hvorki einkamál þessara þriggja flokka sem ríkisstjórnina mynda, né sérstakt úrlausnarefni fyrir stjórnarandstöðuna á meðan Alþingi er ekki að störfum.

Best færi auðvitað á því að þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem ósáttastir eru með Svandísi Svavarsdóttur leggðu sjálfir fram tillögu um vantraust. Með því ynnist tvennt. Í fyrsta lagi gæfi það viðkomandi þingmönnum tækifæri til að standa með sannfæringu sinni í tillöguformi í stað þess að líta til stjórnarandstöðunnar. Í öðru lagi myndi það sjálfkrafa leiða til stjórnarslita og losa þjóðina, og ríkisstjórnarflokkana, undan þessari erindislausu áþján sem þetta samstarf er orðið fyrir alla.

En átökin núna út af áliti umboðsmanns Alþingis snúast ekki bara um hvalveiðar. Það hefur skýrt komið fram hjá Sjálfstæðisflokknum að þetta snúist líka um verkefnin fram undan í Matvælaráðuneytinu „þannig að það sé samhljómur og ágreiningslaust milli stjórnarflokkanna.“ Það þýðir á mannamáli að áform Svandísar um breytingar í sjávarútvegsmálum og fiskeldi eru partur af jöfnunni. Það hefur ekki verið mikil stemmning í Sjálfstæðisflokknum fyrir áherslum Svandísar í þeim efnum, svo vægt sé til orða tekið.

Hvalveiðarnar einar og sér fella ekki stjórnina. En þegar gamalkunnug varðstaða um hagsmuni stórútgerðar og fiskeldisfyrirtækja bætist við, þá er aldrei að vita hvað gerist.

 

Greinin birtist fyrst á Vísi 9. janúar 2024