15 mar Engin svör
Manni sýnist að þrátt fyrir að skrifað hafi verið undir kjarasamninga, með aðkomu sveitarfélaga og 80 milljarða meðgjöf frá ríkisvaldinu, að þá standi þetta allt frekar tæpt. Atburðarásin er ekki sannfærandi, satt best að segja. Sem er miður því kjarasamningar til langs tíma eru nauðsynlegir. Það er ljóst eftir útspil Sjálfstæðisflokksins á sveitastjórnarstiginu að lítil sátt er um skólamáltíðir, sem þó er partur af samkomulaginu. Í þessu samhengi er líka nauðsynlegt að hafa í huga að ríkisstjórnin á frumkvæði að skólamáltíðunum og síðast þegar ég vissi átti Sjálfstæðisflokkurinn aðild að ríkisstjórnarsamstarfinu. En þetta er svo sem ekki í fyrsta sinn sem Sjálfstæðismenn í sveitastjórnum klóra sér í kollinum yfir Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórninni.
Það er líka mikið áhyggjuefni að ráðherrar geti ekki svarað því hvernig fjármagna á þessa 80 milljarða meðgjöf ríkisins, sem þó er algert grundvallaratriði í baráttunni gegn verðbólgu. Ef það er ekki gert með réttum hætti, þá munu þessir milljarðatugir vinna gegn því markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum. Höfum í huga að íslensk markmið í þeim efnum eru almennt mjög metnaðarlaus í evrópsku samhengi því vextir og verðbólga eru alltaf talsvert hærri hér en í nágrannalöndunum. Alltaf.
En þessi skortur á mikilvægum svörum um sameiginlega sýn á þetta risavaxna verkefni er auðvitað vegna þess að stjórnarflokkarnir hafa ekki náð að semja um nauðsynlegt aðhald, frekar en fyrri daginn. Það er líka mjög sérstakt hvað samtök atvinnulífsins hafa litla skoðun á því hvernig þetta verður fjármagnað því hingað til hafa þau verið mjög hvöss í gagnrýni sinni á aðhaldsleysi í ríkisfjármálum. Skoðanaleysi SA nú byggir sjálfsagt á því að þetta örlæti ríkisstjórnarinnar á annara manna fé er ekkert annað en niðurgreiðsla á launakostnaði atvinnulífsins.
En hvort verðbólgan lækki fer svo eftir útfærslunni. Nauðsynlegt aðhald í ríkisrekstrinum á móti þessari meðgjöf er algert grundvallaratriði fyrir fyrirtæki landsins og launþega. Ég er hóflega bjartsýnn fyrir þeirra hönd því hingað til hefur orðið „aðhald“ verið innantómt skrúðyrði í stjórnarsamstarfinu og að mestu notað til heimabrúks á fundum í Valhöll.
Samandregið er því staðan þannig að VG tók ákvörðun um að fjármagna gamalt kosningaloforð sitt um skólamáltíðir á kostnað Sjálfstæðisflokksins. Og VG tók líka þá ákvörðun að greiða niður launakostnað fyrirtækja landsins með því að veita milljarðatugum í bótakerfin. Það var reyndar ekki á kostnað Sjálfstæðisflokksins heldur með velþóknun hans og algeru skoðanaleysi á útfærslunni. Enda mun þetta 80 milljarða faðmlag flokkanna sennilega verða úrlausnarefni næstu ríkisstjórnar að mestu.
Samningarnir renna svo út eftir fjögur ár. Í millitíðinni verða bæði kosningar til Alþingis og sveitastjórna. Hvað verður um fríar skólamáltíðir og áframhaldandi fjármögnun bótakerfanna þegar samningstímanum lýkur? Ætlar einhver að svara því?