Há­mark tryggir sjálf­bærni

Í síðustu viku samþykkti bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar stefnu og aðgerðaáætlun um móttöku skemmtiferðaskipa. Ég leyfi mér að segja að þetta sé heildstæðasta stefnan af þessu tagi sem samþykkt er á landinu, og fyrsta skipti sem sveitarfélag setur skriflegt og skýrt hámark á fjölda gesta á hverjum degi. Er það gert til að tryggja gæði upplifunar gesta skipanna og annarra ferðamanna, og stuðla að því að íbúar og gestir geti lifað í sátt og samlyndi áfram. Með þessu náum við stjórn á málaflokknum og getum vonandi dreift betur skipakomunum.

Miklar tekjur, fjölbreytt aðgerðaáætlun

Skemmtiferðaskipum sem koma til hafna Ísafjarðarbæjar hefur fjölgað ört síðustu ár. Skyldi engan undra; Ísafjarðarbær er frábær viðkomustaður sem býður upp á skemmtilega blöndu af náttúru- og menningarupplifun. Þessari móttöku hafa fylgt miklar tekjur fyrir ferðaþjóna, verslanir og þjónustu. Mörg fyrirtæki sem starfa á ársgrundvelli og þjóna heimamönnum hefðu ekki rekstrargrundvöll án skemmtiferðaskipanna. Ísafjarðarhöfn er þriðja stærsta höfnin, ekki langt frá Reykjavík og Akureyri í fjölda farþega á ári. Tveir þriðju tekna hafnarinnar koma af móttöku skemmtiferðaskipa.

Mörg atriði snúa að bættum gæðum í móttöku gestanna og skipanna. Unnið er að dýpkun sundanna og frágangi á nýjum viðlegukanti. Skipulagi er verið að breyta og undirbúningur hafinn að byggingu farþegahúss þar. Þá þarf að tryggja aðgengi, göngustíga, upplýsingagjöf, aðgengi að salernum og ýmsa aðra þjónustu.

Hvað varðar umhverfismálin, þá bíðum við leyfis Alþingis til að geta látið hafnargjöld endurspegla umhverfiseinkunn skipanna, en okkur er það því miður óheimilt í dag. Við viljum einnig efla loftgæðamælingar og auka sýnileika þeirra niðurstaðna. Rannsóknir hingað til sýna að skipin hafa lítil áhrif á loftgæði í Skutulsfirði, jafnvel þó skipin séu stór og fjörðurinn þröngur. Þá viljum við stuðla að rafvæðingu hafnanna.

Einnig er settur á fót nýr sjóður, sem raunar hefur í einfaldaðri mynd tekið til starfa, sem ætlað er að styrkja ýmis menningar-, umhverfis- og samfélagsverkefni. Þannig njóta íbúar ávinnings af móttöku skipanna með skýrum hætti.

Hámark tryggir langtímahagsmuni

Það sem er þó kannski fréttnæmast er hámark sem sett er á gestafjölda, en árin 2025 og 26 er sett hámark upp á um fimm þúsund farþega á dag. Með þessu er ljóst að sveitarfélagið getur orðið af einhverjum tekjum til skemmri tíma, en með því að setja mörk teljum við að hægt sé að auka langtímatekjur með bættri upplifun gesta og heimamanna. Uppbygging í tengslum við móttöku skipanna mun svo gefa tilefni til að endurskoða þessar tölur.

Fyrsta skemmtiferðaskip þessa árs kemur á laugardaginn þó hér snjói enn. Gleðilegt skemmtiskipasumar!

 

Greinin birtist fyrst á Vísi 10. apríl 2024