Guðmundur nýr aðstoðarmaður þingflokks Viðreisnar

Guðmundur Gunnarsson hefur verið ráðinn nýr aðstoðarmaður þingflokks Viðreisnar.

Guðmundur er fæddur 23. september 1976 á Ísafirði. Hann er með BA gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík.

Guðmundur hefur undanfarið starfað sjálfstætt sem ráðgjafi en var áður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og frétta- og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV og Fréttablaðinu.

Guðmundur var auk þess oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi fyrir síðustu Alþingiskosningar. Hann mun sinna ýmsum verkefnum fyrir þingflokk Viðreisnar og bæði þingmenn og starfsfólk eru ánægð með að fá Guðmund til starfa.

Guðmundur, sem hóf störf í dag, tekur við starfinu af Dagbjarti Gunnari Lúðvíkssyni, sem hefur verið þingflokki Viðreisnar innan handar síðastliðin sex ár. Viðreisn bíður Guðmund velkominn en vill um leið koma á framfæri þakklæti til Dagbjarts fyrir vel unnin störf.