Stjórnarandstaðan fagnar árangri í þinglokasamningum

Sameiginleg fréttatilkynning frá stjórnarandstöðuflokkum á Alþingi – Samfylkingu, Flokki fólksins, Pírötum, Viðreisn og Miðflokki

→ Ríkisstjórnin fellst á breytingar stjórnarandstöðunnar á örorkufrumvarpi
→ Frumvörpum um slit ÍL-sjóðs og lagareldi frestað
→ Stjórnarflokkar náðu ekki saman um vindorku og raforkulög

* * *

Þinglokasamningar náðust á fundi formanna allra stjórnmálaflokka á Alþingi laust fyrir miðnætti í
gær. Stærstu tíðindin eru þau að ríkisstjórnin fellst á sameiginlegar breytingartillögur allra flokka í
stjórnarandstöðu við örorkufrumvarp félagsmálaráðherra. Stjórnarmeirihlutinn stefnir að afgreiðslu
lögreglulaga og frumvarps um stofnun Mannréttindastofnunar en frumvarpi um slit ÍL-sjóðs verður
frestað að kröfu stjórnarandstöðu.

Frumvörpum um lagareldi og breytingar á sóttvarnarlögum verður einnig frestað auk frumvarpa um
vindorku og raforkulög þar sem stjórnarflokkarnir náðu ekki saman. Þá má nefna að kröfu Flokks
fólksins verða engar breytingar gerðar varðandi nýtingu persónuafsláttar eldra fólks sem er búsett
erlendis nema að undangenginni athugun efnahags- og viðskiptanefndar.
Stjórnarandstaðan gekk sameinuð til þinglokasamninga og fagnar árangri þeirra. Þar munar mestu
um að sameiginlegum lágmarkskröfum stjórnarandstöðu um breytingar á örorkufrumvarpi verður
mætt að verulegu leyti:

  • Heimilisuppbót hækkar þannig að enginn öryrki verður í verri stöðu en áður.
  • Hnykkt verður á því að enginn sem er nú þegar með örorkumat verði þvingaður í svokallað
    „samþætt sérfræðimat“ – sem enn hefur ekki verið útfært.
  • Alþingi fær skýrslu frá ráðherra um útfærslu á þessu nýja mati áður en það verður innleitt og
    velferðarnefnd mun fjalla um það.
  • Sett verður inn ákvæði um endurskoðun á áhrifum virknistyrks á stöðu öryrkja í atvinnuleit.

Ríkisstjórnin féllst ekki á að afnema skerðingu á tekjum öryrkja vegna fjármagnstekna maka að svo
stöddu en málið verður tekið til skoðunar í samstarfi fjármála- og efnahagsráðuneytis og félags- og
vinnumarkaðsráðuneytis.

Stjórnarandstaðan harmar að samgönguáætlun hafi ekki verið kláruð vegna innbyrðis óeiningar hjá
ríkisstjórnarflokkunum. Sú áætlun sem var lögð fram var algjörlega ótæk til afgreiðslu