Þetta er búið. Kjósum!

Það er stundum sagt að vika sé langur tími í pólitík. Þessa pólitíska mælieining hefur samt eiginlega öðlast nýja merkingu í þeim feigðardansi sem stigin er í stjórnarráðinu dag og nótt, viku eftir viku. Við takmarkaða hrifningu landsmanna.

Enda segir það sig sjálft að það er ekki hægt að ætlast til þess af venjulegu fólki og fyrirtækjum, sem eru að sligast undan ofurþunga íslensku okurvaxtanna, að vera klappstýrur í þessum hrunadansi sem endar vonandi fyrr en síðar með því að einhver stjórnarflokkanna öðlast frelsi frá óttanum við kjósendur. Og að boðað verði til kosninga sem fyrst.

Við þessar aðstæður er hver vika ekkert annað en heil eilífð hjá fólki sem horfir á lán og afborganir hækka um hver mánaðamót. Það á auðvitað þá réttmætu kröfu að ríkisstjórnin vinni samhent í því verki að ná niður verðbólgu og vöxtum. Í stað þess að eyða orku og tíma í innbyrðis átök sem skilar engu fyrir vaxtapínda þjóð.

Á einni viku hefur þetta gerst: VG stillir hinum flokkunum upp við vegg með kröfu um kosningar í vor. Sjálfstæðisflokkur svarar með því krefjast þess að VG samþykki aðgerðir í útlendinga og orkumálum, ella verði slitið. Sigurður Ingi, langþreyttur á rifrildi jaðarflokkanna, yfirtrompar svo afarkostapartíið með því að gefa Bjarna og Svandísi örfáa daga til sættast. Það er erfitt að sjá það gerast, jafnvel þótt vika sé langur tími í pólitík.

Það sér það hver maður að þetta er búið. Ríkisstjórnarsamstarf með endurteknum hótunum um stjórnarslit skapar ekki forsendur fyrir stöðuga hagstjórn. Gagnkvæmir afarkostir skrúfa ekki niður verðbólguvæntingar, heldur þvert á móti. Þetta ástand gerir ekkert annað en að lengja tímabil hávaxtanna og reikninginn borgum við öll. Í beinhörðum peningum.

Þessi ríkisstjórn var mynduð á sínum tíma með hástemmdum yfirlýsingum um að tryggja þyrfti pólitískan stöðugleika. Sjö árum síðar er staðan sú að pólitískur stöðugleiki fæst ekki nema sama ríkisstjórn fari frá. Við þurfum að kjósa til Alþingis sem fyrst. Ekki næsta haust, ekki næsta vor, heldur á næstu vikum.

Greinin birtist fyrst á Vísi 13. október 2024