28 nóv Af hverju kýs ég frjálslyndi og frelsi?
Oft nota pólitískir flokkar stór orð sem segja lítið. Orð eins og „frelsi“, „réttlæti“, „frjálslyndi“, „íhaldssemi“. En það sem sem kjósendur vilja fá, eru skýringar. Hvað felst eiginlega í þessum hugtökum?
Ég er á lista Viðreisnar vegna þess að ég trúi á frjálslyndi og frelsi einstaklingsins. Það sem heillar mig við þessa hugmynd er einfaldlega það, að við sem einstaklingar, eigum að hafa rétt til að lifa lífi okkar á eigin forsendum, svo lengi sem við sköðum ekki aðra. Ég trúi því að hver og einn eigi rétt á að taka eigin ákvarðanir, frekar en að ríkið eða aðrir blandi sér óþarflega í okkar líf. Þetta gerir okkur ekki bara sjálfstæð, heldur veitir okkur tækifæri til að nýta hæfileika okkar til fulls.
Frjálslyndi og frelsi eru ekki bara orð, þau eru kjarninn í þeirri stefnu sem Viðreisn stendur fyrir. Við viljum sjá opinn markað, þar sem samkeppni eykur nýsköpun og lækkar verðlag. Við viljum líka tryggja réttindi allra – hvort sem það snýr að því að velja hvern við elskum, velja okkur nafn, stunda okkar íþrótt eða hafa val um það sem við kaupum og hvenær.
Tökum dæmi um áfengi í matvöruverslunum. Þetta snýst ekki um að hvetja fólk til að drekka meira, heldur um það að við sem einstaklingar fáum að taka ábyrgð á lífi okkar. Ef ég vil kaupa áfengi, þá er það mitt val hvort það sé á sunnudegi eða á fimmtudegi eftir kl. 20. Ef áfengi hentar mér ekki, þá sleppi ég því. Þetta er í raun kjarninn í því sem ég tel að frjálslynt samfélag á að vera. Þar sem við fáum að taka eigin ákvarðanir út frá okkar eigin óskum, ekki á grundvelli fyrirmæla frá ríkinu.
Það sama gildir um bardagaíþróttir. Ef ég vil keppa í hnefaleikum – sem er áhættusöm íþrótt – þá ætti ekki að vera á valdi ríkisins að banna mér það. Ef ég vel að taka þá áhættu, þá tek ég ábyrgð á henni sjálf. Frelsi til að velja og taka ákvarðanir, jafnvel þegar þær eru áhættusamar. Kjarni sjálfræðis er að við fáum að taka ábyrgð á lífi okkar.
Viðreisn trúir á frelsi, en við trúum líka á ábyrgð. Við viljum að ríkið grípi ekki óþarflega inn í líf okkar. Við viljum minnka ríkisafskipti og einfalda stjórnsýslu, en á sama tíma styrkja og varðveita grunnstoðir samfélagsins. Það þýðir að við viljum ekki sjá ríkisvaldið stýra eða stjórna öllum þáttum lífs okkar, en við teljum að við eigum að tryggja þær mikilvægu stofnanir sem við öll þurfum til að samfélagið virki vel.
Frelsi og ábyrgð einstaklingsins er grundvöllurinn að betra samfélagi. Við viljum að allir hafi tækifæri til að lifa lífinu á eigin forsendum.
Breytum þessu, saman.