28 jan Ný stjórn í Norðausturráði Viðreisnar
Á aðalfundi Norðausturráðs Viðreisnar sem haldin var í gær, mánudaginn 27. janúar, var Lovísa Oktavía Eyvindsdóttir kjörinn formaður og tekur hún við af Heiðu Ingimarsdóttur.
Með henni í stjórn voru kjörin: Halla María Sveinbjörnsdóttir, Páll Baldursson, Rut Jónsdóttir og Urður Arna Ómarsdóttir. Varamenn voru kjörnir Arngrímur Ásgeirsson og Hafsteinn Árnason.
Viðreisn óskar nýrri stjórn til hamingju með kjörið og þakkar fráfarandi stjórn fyrir góð störf. Það er mikill hugur í nýrri stjórn að styrkja félagsstarfið á Norðausturlandi og styðja við þingmann Viðreisnar í kjördæminu, Ingvar Þóroddsson.