Viðreisn á Vestfjörðum stofnað

Stofnfundur Viðreisnar á Vestfjörðum var haldinn á Dokkunni, brugghúsi í gær, miðvikudaginn 15. október. Sigmar Guðmundsson, ritari Viðreisnar og María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar í kjördæminu voru viðstödd fundinn.

Í stjórn félagsins voru kosin Valur Richter formaður, Magnús Ingi Jónsson, Thelma Dögg Theodórsdóttir, Vigdís Erlingsdóttir og Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir. Varamenn eru Gylfi Ólafsson og Auður Ólafsdóttir.

“Það hefur verið gaman að sjá hvað Viðreisn hefur verið að stækka og eflast á Vestfjörðum,” segir Valur Richter, nýr formaður. “Stofnun Viðreisnar á Vestfjörðum verður til að efla starfið enn frekar og styrkja grasrótina. Það er ótrúlega mikil uppbygging hér á Vestfjörðum sem  við viljum taka þátt í að þróa til betri vegar. Viðreisn er komin til að vera og við viljum sjá  uppbyggingu fyrir alla.”

Á fundinum sköpuðust fjörugar umræður og greinilega mikill hugur í fólki. Helstu áhersluatriði voru rædd og farið var yfir komandi sveitarstjórnarkosningar.  Nú eru bæjarfulltrúar úr röðum Viðreisnar í Ísafjarðarbæ, Bolungarvík og Vesturbyggð. Einnig var tækifærið nýtt og málefni svæðisins rædd við þingmennina. Íbúar á Vestfjörðum sem hafa áhuga á að starfa með félaginu geta haft samband með því að senda póst á vestfirdir@vidreisn.is

Meðfylgjandi er mynd af Sigmari Guðmundssyni, Val Richter nýkjörnum formanni Viðreisnar á Vestfjörðum og Maríu Rut Kristinsdóttur.