23 okt Viðreisn stækkar hópinn
Þingflokkur Viðreisnar hefur ráðið Söndru Sigurðardóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra HK, til starfa sem framkvæmdastjóra þingflokks. Sandra er menntuð íþrótta- og heilsufræðingur ásamt því að vera með MBA gráðu, en hún hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Hún hefur starfað sem þjálfari, við leikskóla og grunnskóla, sinnt eigin rekstri ásamt víðtækri reynslu af stjórnun í íþróttahreyfingunni. Samhliða störfum sínum er Sandra bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar og varaþingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Sandra mun hefja störf á Alþingi á næstu vikum.
„Ég er full tilhlökkunar fyrir þessu mikilvæga verkefni. Það er verkefni okkar í Viðreisn að hlusta á fólkið í landinu, eiga samtöl í augnhæð og vinna af heilindum í þeirra þágu. Ég hlakka til að vinna með þingmönnum okkar að því markmiði og efla flokkinn um land allt,“ segir Sandra.
Þá hefur Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, ráðið Guðmund Gunnarsson, fráfarandi framkvæmdastjóra þingflokks Viðreisnar, til starfa sem aðstoðarmann sinn. Fyrir er Stefanía Sigurðardóttir aðstoðarmaður Hönnu Katrínar. Guðmundur hefur þekkingu og reynslu af málaflokkum sem lúta að ráðuneytinu hvort sem viðkemur sjávarútvegi, landbúnaði, ferðaþjónustu, iðnaði eða neytendamálum. Hann hefur starfað fyrir þingflokkinn frá því í fyrra en þar áður starfaði hann í blaða- og fréttamennsku og var bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
„Við erum alveg ótrúlega heppin með það mikla mannaval sem við höfum í þingmönnum okkar og starfsfólki, Sandra verður frábær viðbót í það öfluga lið. Hlutverk framkvæmdastjóra þingflokks eru fjölbreytt, skemmtileg og geta reynst krefjandi og ég er handviss um að Sandra eigi eftir að sinna þeim af alúð og ábyrgð,“ segir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, um ráðningu Söndru. „Að sama skapi hefur Guðmundur Gunnarsson sinnt þessu hlutverki af stakri prýði og hjá okkur ríkir ekkert nema ánægja með hans störf. Hann verður öflugur liðsauki til Hönnu Katrínar, atvinnuvegaráðherra, í þau mikilvægu verkefni sem liggja fyrir henni.“