31 jan Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í Reykjavík
Björg Magnúsdóttir var kjörin oddviti Viðreisnar í Reykjavík í rafrænu leiðtogaprófkjöri sem fram fór í dag. Hún mun því leiða lista Viðreisnar í komandi borgarstjórnarkosningum.
Björg hlaut 1011 atkvæði í leiðtogaprófkjörinu eða 48% af gildum atkvæðum.
„Ég er ofboðslega þakklát fyrir öll þau sem treystu mér til að leiða listann í borgarstjórnarkosningunum í vor ,“ segir Björg. „Ég er líka mjög þakklát meðframbjóðendum mínum sem háðu drengilega og jákvæða baráttu, í anda Viðreisnar. Þetta er bara fyrsta skrefið. Í vor þarf Reykjavík viðreisn með litlu „v“ og Viðreisn með stóru „V“.
Úrslitin voru kynna á fjölmennri kosningavöku á Petersen í kvöld.
Á kjörskrá voru 2934 og var kjörsókn 72%.
Atkvæði fóru sem hér segir:
| Nafn | 1. sæti | Hlutfall |
| Björg Magnúsdóttir | 1011 | 48,0 % |
| Aðalsteinn Leifsson | 587 | 27,9 % |
| Róbert Ragnarsson | 479 | 22,8 % |
| Signý Stefánsdóttir | 28 | 1,3 % |
| Gild atkvæði | 2105 |