Emilía Björt til þingflokks Viðreisnar og nýr framkvæmdastjóri

Þingflokkur Viðreisnar hefur ráðið Emilíu Björt Írisardóttur Bachmann, lögfræðing, til starfa. Hún tekur við af Sigurjóni Njarðarsyni sem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokksins. Starfsmenn þingflokks Viðreisnar eru fjórir talsins en fyrir eru Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir og Pétur Björgvin Sveinsson að störfum.

Emilía Björt er með BA gráðu í stjórnmálafræði sem og BA og Mag. Jur. gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS) og á skrifstofu jafnréttismála í dómsmálaráðuneytinu. Emilía hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Viðreisn og var m.a. varaforseti Uppreisnar og sat í stjórn Reykjavíkurráðs Viðreisnar.

Sigurjón lauk BA gráðu og ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur starfað sem lögfræðingur þingflokksins síðastliðið ár en þar áður starfaði hann hjá Orkustofnun og Matvælastofnun. Sigurjón hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Viðreisn undanfarin ár m.a. uppstillingu í sveitarstjórnarkosningum og kosningastjórn í Suðurkjördæmi.

Þingflokkurinn býður Emilíu innilega velkomna í hópinn og óskar þeim Sigurjóni velfarnaðar í nýjum verkefnum.