20 feb Myrkvinn
Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sem mun sjást á öllu vestanverðu landinu. Þetta er fyrsti almyrkvi sem sést hér á landi frá árinu 1954 og annar myrkvi mun ekki sjást fyrr en árið 2196. Liggur almyrkvaslóðin að þessu sinni yfir höfuðborgarsvæðið, Reykjanesskaga, Snæfellsnes og Vestfirði, en á þessum svæðum búa samtals um 290 þúsund manns.
Og það verður ekki lítill fjöldi fólks sem reynir að fylgjast með þessu einstaka sjónarspili, bæði Íslendingar og ferðamenn. Árið 2015 gekk almyrkvi á sólu yfir Færeyjar. Áætlað er að um 11.500 manns hafi sótt nágranna okkar heim í tilefni almyrkvans. Ekki var rými fyrir fleiri gesti í Færeyjum, og má því með sanni segja að Færeyjar hafi verið uppseldar þegar tunglið huldi sólina þar. Nú stefnir í að það sama gerist hér en að minnsta kosti þrettán skemmtiferðaskip stefna til landsins fyrir almyrkvann, og ótalinn fjöldi flugvéla.
Áhrif almyrkvans munu þó ekki aðeins taka til fjölgunar erlendra gesta. Heimafólk mun sömuleiðis leggja mikið á sig til þess að berja þetta stórkostlega náttúrufyrirbrigði augum. Líkur standa því til að tugir þúsunda verði á faraldsfæti um vestanvert landið í ágúst næstkomandi. Því er það fagnaðarefni að forsætisráðuneytið hafi tekið af skarið og skipað stýrihóp sem hefur það hlutverk að samhæfa og samræma undirbúning fyrir sólmyrkvann og aðgerðahóp sem mun starfa undir forystu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Er það í samræmi við þingsályktunartillögu sem ég lagði fram á Alþingi fyrir nokkru. Þegar almyrkvi gekk yfir Bandaríkin árið 2017 þurfti til að mynda að kalla út þjóðvarðlið vegna umferðaröngþveitis sem myndaðist í Oregon-fylki eftir að sólmyrkvanum lauk. Því er mikilvægt að við séum viðbúin og þolmarkagreinum innviði okkar og landsvæði sem mæða mun mikið á.
Þrátt fyrir ofangreindar áskoranir felur sólmyrkvinn þó fyrst og fremst í sér tækifæri fyrir Ísland og okkur sem hér búum. Ekki bara á sviði ferðaþjónustu og landkynningar, heldur einnig til þess að fræða börn um náttúru og vísindi, til þess að efna til mannamóta og menningarviðburða, til ýmiss konar fjölmiðlunar, ljósmyndunar og listsköpunar, svo fátt eitt sé nefnt.
Tæpir 174 dagar eru til stefnu fram að almyrkvanum. Auðsýnt er að þetta stórkostlega sjónarspil mun ekki síður vekja athygli á landinu okkar en þau eldgos sem vakið hafa athygli út fyrir landsteinana. Nú er mikilvægt að nýta þetta tækifæri til fulls, byggja undir jákvæða upplifun fyrir gesti og íbúa og tryggja að allt fari vel fram þrátt fyrir miklar áskoranir í samgöngum þegar fólk færir sig á milli svæða í takt við veðurspár. Vonandi verður heiðskírt í öllu myrkvabeltinu því þetta er eitt stórkostlegasta sjónarspil sem náttúran býður upp á.