27 feb Ný stjórn Viðreisnar á Seltjarnarnesi
Ný stjórn Viðreisnar á Seltjarnarnesi var kosin á aðalfundi félagsins í gær. Nýr formaður er Agnar H. Johnson og með honum í stjórn eru Annas Jón Sigmundsson, Kristín Edda Óskarsdóttir, María Stefánsdóttir, Páll Árni Jónsson.
Fráfarandi stjórn eru þökkuð góð störf og nýrri stjórn óskað velfarnaðar í störfum sínum.
Nýjar samþykktir félagsins voru staðfestar og heitir félagið nú Viðreisn á Seltjarnarnesi í stað Félag Viðreisnarfólks á Seltjarnarnesi. Einnig var samþykkt formlega á fundinum að ganga til samstarfs við Samfylkinguna og óháða á Seltjarnarnesi með framboð til sveitarstjórnar í kosningunum í vor. Stjórn var falið að vinna málið áfram.