09 mar Framboðslisti Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi
Listi Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra frambjóðenda var kynntur í gær í Golfskálanum á Seltjarnarnesi. Framboðið sameinar fólk með fjölbreyttan bakgrunn í rekstri, stjórnsýslu, nýsköpun, skipulagsmálum og samfélagsstarfi.
Í efstu fimm sætunum eru:
- Kristinn Ólafsson, stjórnandi og ráðgjafi
- Sigurþóra Bergsdóttir, varaþingmaður
- Helgi Steinar Helgason, arkitekt
- Auður Halla Rögnvaldsdóttir, háskólanemi
- Egill Ö. Hermannsson, sérfræðingur hjá Fjársýslunni
Frambjóðendur segja að Seltjarnarnes hafi alla burði til að vera eitt öflugasta og eftirsóknarverðasta sveitarfélag landsins. Á sama tíma sé ljóst að áskoranir hafi safnast upp í fjármálum og innviðum bæjarins á undanförnum árum.
Markmið listans er að taka á þessum verkefnum af ábyrgð, styrkja þjónustu við íbúa og byggja upp lifandi samfélag á Nesinu þar sem mannlíf, skólar og þjónusta standa undir væntingum bæjarbúa.
Frambjóðendur leggja sérstaka áherslu á ábyrga fjármálastjórn, sterka skóla og þjónustu við fjölskyldur, auk þess að efla samfélagslíf og bæjarbrag á Seltjarnarnesi.
„Við erum með sterkan hóp fólks sem vill leggja sitt af mörkum til að gera góðan bæ enn betri. Seltjarnarnes á að vera bæjarfélag þar sem þjónusta, skólar og bæjarbragur standa undir væntingum íbúa. Við viljum taka ábyrgð á því að snúa rekstrinum við og byggja upp bæinn aftur með skýrri sýn og góðu samstarfi við íbúa. Markmið okkar er að taka á þeim verkefnum sem blasa við og byggja upp sterkt og lifandi samfélag á Nesinu,“ segir Kristinn Ólafsson, oddviti listans.
Frambjóðendur lista Samfylkingar, Viðreisnaro g óháðra
- Kristinn Ólafsson, stjórnandi og ráðgjafi
- Sigurþóra Bergsdóttir, varaþingmaður
- Helgi Steinar Helgason, arkitekt
- Auður Halla Rögnvaldsdóttir, háskólanemi
- Egill Ö. Hermannsson, sérfræðingur hjá Fjársýslunni
- Áslaug Eva Björnsdóttir, ráðgjafi í stafrænni umbreytingu
- Kristín Edda Óskarsdóttir, ráðgjafi og frumkvöðull
- Garðar Svavar Gíslason, viðskiptafræðingur
- Halla Helgadóttir, sálfræðingur
- María Stefánsdóttir, umhverfisverkfræðingur
- Björg Þorsteinsdóttir, kennari við Valhúsaskóla
- Skúli Eiríksson, kerfisfræðingur
- Karen María Jónsdóttir, stafrænn leiðtogi
- Guðmundur Ari Sigurjónsson, alþingismaður