Hallarekstur stöðvaður

Verðbólgan hefur bitið harðar en vonir stóðu til. Seðlabankinn hefur brugðist við með vaxtahækkun og skýrum skilaboðum um aðhald og ábyrgð. Í raunveruleika fólks þýðir það þyngri róður fyrir heimili og fyrirtæki og minna svigrúm til framtíðarfjárfestinga. Þetta er staða sem krefst viðbragða, festu og aga í framkvæmd.

Efnahagsleg ábyrgð er ekki bara eitthvert slagorð heldur forsenda stöðugleika. Forsenda þess að komast út úr vítahring vaxta og verðbólgu. Það krefst þess að hafa lappirnar á jörðinni og taka ákvarðanir byggðar á langtímahugsun, ekki skammtímavinsældum.

Ríkisfjármálin skipta þar sköpum. Þegar ríkið eyðir umfram efni eykst þrýstingur í hagkerfinu sem kyndir undir verðbólgu og heldur vöxtum háum. Hallareksturinn hefur varað of lengi og haft bein áhrif á heimilisbókhald landsmanna. Nú er kominn tími á nýtt leikskipulag og aðra nálgun.

Í gær kynnti Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Yfirskriftin var „Agi og festa – stöðvun hallareksturs“ og segir í raun það sem segja þarf. Ríkisstjórnin ætlar að tryggja hallalaus fjárlög 2027. Þannig verður rekstur ríkisins í jafnvægi í fyrsta skipti frá 2018 á vakt þessarar ríkisstjórnar. Það á að hagræða og sameina stofnanir. „Við getum ekki rekið ríkissjóð með halla að eilífu og sent reikninginn á börnin okkar,“ sagði Daði Már réttilega í gær.

Með fjármálaáætluninni er haldið aftur af vexti ríkisútgjalda og honum haldið vel innan marka stöðugleikareglu. Það á að einfalda stjórnsýslu og nýta fjármuni betur með þéttri forgangsröðun og hagræðingu.

Í þessu kristallast ábyrgð og áhersla ríkisstjórnarinnar. Það er ekki alltaf vinsælt verkefni að ná tökum á ríkisfjármálunum en það er nauðsynlegt. Því hver einasta króna sem fer í vaxtagreiðslur og skuldir er króna sem fer ekki í að byggja upp innviði, efla heilbrigðiskerfið eða styrkja stoðir menntakerfisins. Hún fer ekki í að bæta lífskjör eða tækifæri. Þess vegna er það frumskylda okkar að fara vel með sameiginlega sjóði landsmanna.

Ábyrg ríkisfjármál er ein af lykilstoðum í stefnu Viðreisnar. Við erum óhrædd við að taka ákvarðanir og skorumst ekki undan þeirri ábyrgð sem okkur er falin við stjórn landsins. Því þegar öllu er á botninn hvolft er sterk efnahagsstjórn og sterkar stoðir kröftugasta fjárfesting samfélagsins til framtíðar. Með auknum stöðugleika skapast svigrúm til að lækka álögur á almenning. Það eykur samkeppnishæfni okkar til muna og býr til svigrúm fyrir verðmætasköpun og velsæld.

Við sögðum að við ætluðum að taka til í ríkisrekstrinum. Við ætlum að standa við það verkefni. Með festu, aga og með hagsmuni almennings að leiðarljósi.